Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. ágúst 2026 12:00 Kristófer Breki ásamt Lars Erik Bragasyni eftir einn af mörgum sigrum íslenska liðsins á mótinu. Mynd/FIBA Körfuboltamaðurinn Kristófer Breki Björgvinsson kom til baka eftir 13 mánaða meiðsli er hann hélt á Evrópumót með undir 20 ára landsliði Íslands í sumar. Hann var á meðal betri leikmanna liðsins og fagnar því mjög að vera kominn aftur út á parketið.
Kristófer sleit krossband síðasta vor og fór í aðgerð í maí í fyrra. Hann hafði verið frá í meira en 13 mánuði þegar hann komst loks aftur út á völl, rétt í tíma fyrir EM U20 ára og komst hann því út á mótið með félögum sínum. „Þetta var svakalegt áfall, að vera frá körfubolta í heilt ár eftir að hafa spilað alla daga bara frá því að ég var sex ára. Að koma aftur til baka og vera góður með landsliðinu eftir heilt ár, var svakalegt... Þetta var ógeðslega erfitt, að geta ekki hreyft sig almennilega eða spilað körfubolta eins og ég hafði gert allt mitt líf. Fólkið í kringum mig hjálpaði mér í gegnum þetta allt. Þau stóðu með mér í gegnum allt, sáu það erfiðasta og hjálpuðu mér mjög mikið,“ sagði Kristófer í viðtali við Val Pál Eiríksson fyrir Sportpakka Sýnar. Árangurinn á mótinu var vonum framar. Ísland hafnaði í öðru sæti í B-deild mótsins og komst þar með upp í A-deild. Kristófer var á meðal betri leikmanna Ísland á mótinu. „Þetta var ógeðslega gaman og góð upplifun. Að ná svona góðum árangri og góðu sæti er bara geðveikt. Geggjað að gera þetta með strákunum. Við höfðum alltaf trú á því en samt var það sjokk fyrir okkur að ná svona góðum árangri. Liðsheildin skilaði þessu, við erum allir svo góðir vinir og það small bara eitthvað saman þarna.“ Viðtal við Kristófer Breka má sjá í spilaranum að ofan.
Landslið karla í körfubolta Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Sjá meira