Níu felldir í Kænugarði Agnar Már Másson skrifar 1. ágúst 2026 14:03 Rússar gerðu árásir víða í Kænugarði. AP Rússar gerðu í nótt umfangsmikla árás á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu. Níu fórust og 33 voru særðir, að sögn yfirvalda í Úkraínu.
Þetta kemur í kjölfar fyrri árása Rússa, sem felldu á fimmtudag hið minnsta tíu manns og særðu ríflega fimmtíu í árásum sínum víða um Úkraínu. AP greinir frá. Útlit er fyrir að stjórnvöld í Rússlandi ætli að nýta sér skort Kænugarðs á loftvarnakerfum frá Vesturlöndum, en Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hefur á síðustu mánuðum þrýst á bandamenn sína, einkum Bandaríkin, svo að þeir láti Úkraínumönnum í té Patriot-loftvarnarkerfi. Slökkviliðsmenn í Kænugarði ráða niðurlögum elds sem kom upp í kjölfar drónaárásar Rússa.AP Þó að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi á leiðtogafundi í júní sagst ætla að veita Úkraínumönnum leyfi til að framleiða eigin Patriot-loftvarnakerfi var annar tónn í Trump á blaðamannafundi í gær, en þar kvaðst hann enn eiga eftir að taka lokaákvörðun í málinu. Fimm hæða íbúðarhús í Solomíanský-hverfinu í borginni skemmdist. Björgunarsveitarmenn fluttu 35 manns af efri hæðum hússins og tveir létust, en átta eru sagðir slasaðir, þar á meðal tvö börn, að sögn viðbragðsaðila í Úkraínu. Í Darnytský-hverfinu í Kænugarði létust sjö manns og 14 slösuðust eftir að árásin olli eldsvoða og skemmdum á húsum, farartækjum, stjórnsýslubyggingu og atvinnuhúsnæði, að sögn viðbragðsaðila.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Donald Trump Rússland Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lækkar eigin laun Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Sjá meira