Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar 1. ágúst 2026 17:33 Fyrir nokkrum árum síðan kom frétt um tvær ungar stúlkur í barnaskóla sem höfðu mætt trans konu í sturtu í skólasundi og úr varð mikið mál í fjölmiðlum, á samskiptamiðlum og á Alþingi. Ef ég hef skilið þetta rétt þá var um að ræða þekktan einstakling sem hefur farið í kynstaðfestandi aðgerð og var talið að gert hafi verið úlfaldi úr mýflugu. Ég heyrði fyrst um DSD þegar ég bjó í Svíþjóð fyrir þó nokkuð löngu síðan. Ég man að mér fannst fátt vera erfiðara fyrir fólk en að fæðast með DSD. Hvers vegna, veit ég ekki. Áður fyrr var oft framkvæmd skurðaðgerð á nýfæddum börnum með DSD, en í dag er talið betra að láta einstaklinginn ákveða sjálf/ur, þó svo að stundum séu framkvæmdar lífsnauðsynlegar skurðaðgerðir. Margir einstaklingar með DSD kjósa að fara ekki í skurðaðgerðir og lifa heilbrigðu og góðu lífi. Aðrir velja skurðaðgerð á unglings- eða fullorðinsárum til að lifa í samræmi við kynvitund sína eða til að bæta kynheilbrigði og kynlíf. Því er oft haldið fram að um 1,7% einstaklinga komi í heiminn með DSD, en þar er stuðst við mjög rúma skilgreiningu. Ef litið er til þrengri skýringa læknavísindanna er hlutfallið tugum sinnum lægra. En óháð því hvar tölurnar lenda, þá er þetta klárlega raunverulegur hópur meðal okkar sem á skilið bæði fyllstu virðingu og rétta heilbrigðisaðstoð. Að vera trans er aftur á móti spurning um kynvitund. Er ég strákur, er ég stelpa? Þeir sem eru skráðir vitlaust við fæðingu eiga alla mína samúð, en ég býst við að læknarnir, hjúkrunarkonurnar og foreldrar þeirra voru nokkuð viss, þegar ekki er um DSD að ræða. Ekki veit ég hvort eitthvað sé til í hugmyndinni um hvort vinstri heili eða hægri heili ráði einhverju þar um. Vísindalegar athuganir gefa til kynna margslungið samspil fjölmargra heilastöðva í báðum hvelum heilans. Kynvitund er flókið, líffræðilegt og líffærafræðilegt samspil margra svæða í heilanum sem mótast strax í fósturþroska, löngu áður en við fæðumst. Ef kynvitund ‘mótast strax í fósturþroska, löngu áður en við fæðumst’ þá ætti að vera augljóst að það sé ekki nýtt fyrirbæri að fólk sé trans. Ég hef lesið um og séð heimildamyndir og þætti um fullorðið fólk sem hefur ákveðið að verða það sjálft, en í dag virðist hlutfallið vera mun meira en áður. Sem sagt, það hefur alltaf verið til transfólk en sennilega hefur það fólk farið huldu höfði, sem er sennilega erfitt. Ég neita því ekki. En þá komum við aftur að stúlkunum í sundlauginni. Þegar ég las þessa frétt var mér hugsað til mín sem barns, án þess að vita að manneskjan hafi farið í kynstaðfestandi aðgerð. Ef þetta hefði komið fyrir mig, hefði mér ekki liðið vel. Við vitum öll um fólk sem hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Kynferðislegt ofbeldi þarf ekki alltaf að vera nauðgun, það getur verið káf og ýmislegt annað. Ég varð fyrir því og það er alveg merkilegt hvað þessi frétt gat haft mikil áhrif á mig, núna 50 árum síðar. Ég sá sjálfa mig sem unga stúlku og fann fyrir áhrifunum sem þetta atvik hefði getað haft á mig. Viðbrögð Reykjavíkurborgar: Þessar kvartanir urðu til þess að Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkurborgar (ÍTR) útbjó sérstakan bækling og leiðbeiningar fyrir starfsfólk sundlauga. Þar var skýrt kveðið á um að trans fólk hafi fullan rétt til að nota klefa í samræmi við sitt skráða kyn samkvæmt lögum um kynrænt sjálfræði og að starfsfólk eigi að bjóða þeim sem líður óþægilega að nota sérklefa frekar en að reyna að vísa trans fólki á brott. Skiptir líðan stúlkna ekki máli? Það ætti öllum að vera ljóst að flestir vilja ekki snerta umræðu um þessi mál því þá er fólki yfirleitt hent á bálið, en nú eru íslensku ‘pride’ dagarnir á næstu grösum þar sem maður að nafni Alok Vaid-Menon er væntanlegur með sýningu þann 4. ágúst, en þessi sami einstaklingur hefur meðal annars látið þau orð falla að litlar stelpur séu ‘kinky’. Mig langar að spyrja þá sem bera ábyrgð á fræðslu um trans málefni fyrir börn: Hvernig er gætt að tilfinningalegu öryggi og eðlilegum mörkum barnanna okkar? Hafa einhverjar alvöru rannsóknir verið gerðar á afleiðingum þess þegar svo opinskátt efni um kynfæri er borið á borð fyrir ung börn, ekki síst þau sem eru viðkvæm eða hafa jafnvel glímt við áföll? Hvaða afleiðingar heldur fólk að þetta hafi á ungar sálir? Ég fæ óþægilega tilfinningu þegar ég hugsa aftur til mín sem barns. Hvernig hefði ég brugðist við ef mér hefði verið sagt frá barnsaldri að kynfæri karlmanna væru bara ‘cool’ og ekkert að vera hrædd við? Höfundur hefur samúð með stúlkum og transfólki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar