Infantino sagður biðla til Trump um hjálp Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2026 14:47 Vinirnir Donald Trump Bandaríkjaforseti og Gianni Infantino, forseti FIFA, á verðlaunaafhendingunni eftir úrslitaleik HM á dögunum. Getty/Hannah Peters Knattspyrnusambönd Wales og Svíþjóðar hafa riðið á vaðið með því að draga formlega stuðning sinn við forseta FIFA til baka en forsetinn umdeildi vill nú að sjálfur Bandaríkjaforseti komi sér til bjargar.
Sænska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að styðja ekki forseta FIFA, Gianni Infantino, í komandi endurkjöri og bætist þar í hóp þeirra sambanda sem hafa hætt við að styðja hinn umdeilda forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins, Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sænska knattspyrnusambandinu en á sama tíma berast fréttir af því að Infantino leiti aðstoðar á kunnuglegum slóðum, nefnilega hjá góðvini sínum Donald Trump Bandaríkjaforseta. 🚨 Gianni Infantino is set to hold a meeting with senior figures in the Trump administration as he seeks support to continue at FIFA.Infantino has already been calling federations for public support as pressure grows for him to resign. pic.twitter.com/mtCXKMGcEi— Ben Jacobs (@JacobsBen) August 3, 2026 Sænska sambandið vill finna nýjan forseta. „Á aukastjórnarfundi á mánudag ákváðum við að við berum ekki lengur traust til forystu Gianni Infantino. Það byggir á mati okkar á þróun FIFA til lengri tíma. Við sjáum ítrekaða annmarka þegar kemur að stjórnarháttum, gagnsæi og rekstrarstjórnun. Knattspyrnan á að einkennast af gagnsæi, ábyrgð og virðingu fyrir lýðræðislegum grundvallarreglum,“ sagði Simon Åström, forseti sænska knattspyrnusambandsins. „Þegar við sjáum ekki lengur að þetta gegnsýrir forystuna verðum við að bregðast við. Þess vegna munum við nú vinna með UEFA og öðrum landssamböndum að því að finna annan frambjóðanda,“ hélt hann áfram. UEFA brást harkalega við áformum Gianni Infantino, forseta FIFA, um að selja hlutdeild í HM til einkafjárfesta. FIFA dró síðar tillöguna til baka eftir meðal annars hótanir um sniðgöngu frá Knattspyrnusambandi Evrópu. Under-fire FIFA boss Gianni Infantino begs Trump White House to save his job, set for talks with Marco Rubio: sources https://t.co/gSLvEYBSE2 pic.twitter.com/Adch0xe2vo— New York Post (@nypost) August 3, 2026 „Núverandi forysta FIFA hefur ekki aðeins misst traust UEFA, heldur einnig traust margra annarra meðlima knattspyrnufjölskyldunnar,“ skrifaði UEFA. Wales varð fyrsta af 211 aðildarsamböndum FIFA til að draga til baka stuðningsyfirlýsingu við Infantino sem þegar hafði verið gefin. Meira en 200 sambönd höfðu fyrir síðustu krísu lýst yfir stuðningi við framboð Infantino árið 2027. Enska sambandið er sagt ætla að gera hið sama og nú hafa Svíar gefið það formlega út. Gianni Infantino begs Trump for help as he fights to save his job: 'Isolated' FIFA president 'set for White House talks' after failed bid to sell World Cup https://t.co/pFhQAe8ivj— Daily Mail Sport (@MailSport) August 3, 2026 Það nýjasta af fréttum af Infantino sjálfum er frétt New York Post um að hann hafi biðlað til Hvíta hússins undir stjórn Trump um að bjarga starfi sínu. Í beinu framhaldi áformar hann viðræður við utanríkisráðherrann Marco Rubio Infantino vill að ríkisstjórn Trump hjálpi honum að halda embætti sínu og hefur áætlað einkaviðræður við utanríkisráðherrann Marco Rubio á mánudag innan um vaxandi þrýsting á hann um að segja af sér. Tveir heimildarmenn sem þekkja til málsins staðfestu að Infantino muni eiga símtal við æðsta erindreka Bandaríkjanna í dag.
FIFA UEFA Deilur um Gianni Infantino Tengdar fréttir England dregur stuðning sinn við Infantino til baka Enska knattspyrnusambandið dregur til baka stuðning sinn við endurkjör Gianni Infantino sem forseta FIFA, samkvæmt enskum miðlum. 3. ágúst 2026 10:23 Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Framtíð Gianni Infantino sem forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins er í miklu uppnámi en margir af forsprökkum í alþjóðlegum fótbolta vilja að hann yfirgefi forsetastólinn. 3. ágúst 2026 10:01 UEFA hótar FIFA með lögsókn UEFA hefur hótað FIFAmeð því að lögsækja Alþjóðaknattspyrnusambandið fyrir að reyna að selja hlut í heimsmeistaramótinu til einkaaðila. 2. ágúst 2026 22:57 Á enn hauka í horni: Marokkó og Katar lýsa yfir stuðningi við Infantino Ekki hafa öll aðildarríki FIFA snúið baki við Gianni Infantino, forseta sambandsins, vegna umdeildra áætlana hans um að selja hlut í því til einkafjárfesta. Katar og Marokkó hafa meðal annars lýst yfir stuðningi við Infantino. 2. ágúst 2026 15:19 Infantino hættir við allt saman Gianni Infantino, forseti FIFA, tilkynnti í kvöld að hann væri hættur við umdeilda áætlun sína um að selja hlut í stórmótum sambandsins í kjölfar mikillar andstöðu meðal aðildarsambandanna. 31. júlí 2026 23:45 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Sjá meira
England dregur stuðning sinn við Infantino til baka Enska knattspyrnusambandið dregur til baka stuðning sinn við endurkjör Gianni Infantino sem forseta FIFA, samkvæmt enskum miðlum. 3. ágúst 2026 10:23
Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Framtíð Gianni Infantino sem forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins er í miklu uppnámi en margir af forsprökkum í alþjóðlegum fótbolta vilja að hann yfirgefi forsetastólinn. 3. ágúst 2026 10:01
UEFA hótar FIFA með lögsókn UEFA hefur hótað FIFAmeð því að lögsækja Alþjóðaknattspyrnusambandið fyrir að reyna að selja hlut í heimsmeistaramótinu til einkaaðila. 2. ágúst 2026 22:57
Á enn hauka í horni: Marokkó og Katar lýsa yfir stuðningi við Infantino Ekki hafa öll aðildarríki FIFA snúið baki við Gianni Infantino, forseta sambandsins, vegna umdeildra áætlana hans um að selja hlut í því til einkafjárfesta. Katar og Marokkó hafa meðal annars lýst yfir stuðningi við Infantino. 2. ágúst 2026 15:19
Infantino hættir við allt saman Gianni Infantino, forseti FIFA, tilkynnti í kvöld að hann væri hættur við umdeilda áætlun sína um að selja hlut í stórmótum sambandsins í kjölfar mikillar andstöðu meðal aðildarsambandanna. 31. júlí 2026 23:45
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn