„Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Samúel Karl Ólason skrifar 6. ágúst 2026 13:21 Rannsókn þýskra yfirvalda á Leipzig/Halle flugvellinum er mjög umfangsmikil. AP/Hendrik Schmidt, DPA Úkraínska fragtflugvélin sem sjálfsprengidróni fannst við hliðina á á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gær, var hlaðin skotfærum sem höfðu verið flutt frá Frakklandi og talið er að átti að flytja áfram til Úkraínu. Sprengiefnið sem dróninn bar ku vera öflugt og er notað í hernaði en hvelletan mun hafa verið gölluð.
Ekki liggur fyrir hver ber ábyrgð á drónanum eða öðrum sem önnur flugvél flaug á skömmu eftir flugtak en Alexander Dobrindt, innanríkisráðherra Þýskalands, sagði í gær að um svokallaðan „blandaðan hernað“ væri að ræða. Dobrindt sagði einnig að ummerki bentu til þess að fagmenn bæru ábyrgð á drónanum. Samkvæmt heimildum þýska miðilsins Süddeutsche Zeitung sáu starfsmenn flugvallarins þegar drónanum var flogið milli tveggja flugvéla frá Úkraínu í fyrrakvöld. Varnarkerfi flugvallarins mun ekki hafa greint drónann en hann endaði síðan í jörðinni við hlið einnar flugvélar. Sjá einnig: Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Miðillinn segir að rannsókn hafi leitt í ljós að dróninn hafi borið um Semtex-sprengiefni en það er plastsprengiefni sem var þróað og framleitt í Tékkóslóvakíu á árum áður. Það er bæði notað í hernaði og í iðnaði. Umræddur flugvöllur, sem kallast Leipzig/Halle, er mikið notaður til fragtflugs og er ein af þungamiðjum Evrópu þegar kemur að hergagnaflutningum til Úkraínu. Árið 2024 kviknaði eldsprengja um borð í gámi á flugvellinum. Það er talið hafa verið ráðabrugg rússneskra útsendara, sem hafa verið sakaðir um skemmdarverk og jafnvel morðtilræði víða í Evrópu. Bild segir frá því að dróninn sem fannst við hlið flugvélarinnar hafi verið heimagerður og sérsmíðaður til að geta flogið langa leið eða svo hægt væri að nota hann til að bíða lengi á lofti. Dróninn mun einnig hafa verið sérstaklega hannaður til að komast gegnum varnarkerfi flugvallarins og skoða rannsakendur hvort þeir sem flugu honum hafi haft innherjaupplýsingar um þau kerfi. Reuters segir að enn sé leitað að braki úr því sem talið er hafa verið annar dróni og önnur flugvél flaug á aðfaranótt miðvikudags. Welt ræddi við Marc Henrichmann, þingmann, sem sagði líklegt að árásartilraunin tengist innrás Rússa í Úkraínu. Spjótin beinist sérstaklega að Rússlandi. Hlusta má á viðtalið við þingmanninn í spilaranum hér að neðan, en það er með enskri talsetningu. Þýski miðillinn Zeit sagði frá því í gær að tveir menn hefðu verið handteknir í Þýskalandi á dögunum, vegna gruns um að þeir hafi ætlað að ráða forstjóra þýsks fyrirtækis sem framleiðir dróna fyrir úkraínska herinn af dögum. Mennirnir tveir eru sagðir hafa verið á vegum rússneskra útsendara.
Þýskaland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Geðrofslyf leysa hefbundin svefnlyf af hólmi Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Sjá meira