Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Agnar Már Másson skrifar 6. ágúst 2026 17:48 J.D. Vance er varaforseti Bandaríkjanna. AP/Ben Bray Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði nýlega við fjársterka stuðningsmenn sína á lokuðum fundi að þeir ættu að styðja við hugsanlegt framboð J.D. Vance varaforseta í forsetakosningum 2028.
Washington Post hefur þetta eftir heimildarmönnum, en bæði Vance og utanríkisráðherrann Marco Rubio hafa verið orðaðir við forsetaframboð 2028 og hefur Trump enn ekki lýst opinberlega yfir stuðningi við annan þeirra. „Þegar upp er staðið þá verður J.D. að vera kjörinn,“ er haft eftir Trump á fundinum, með vísan til tveggja heimildarmanna. Þetta kann að benda til þess að Trump hallist frekar að Vance, að sögn Washington Post. Þrátt fyrir það er Trump sagður hafa spurt styrktaraðila sína á fundinum, sem var haldinn í Hvíta húsinu, álits um hvor væri betri kostur. Einnig er haft eftir starfsmanni Hvíta hússins að hann hafi spurt starfsfólk út í kostina tvo í síðasta mánuði. Ónafngreindur ráðgjafi forsetans segir við miðilinn að Trump hafi í raun tekið ákvörðun um að Vance verði arftaki hans sem leiðtogi Repúblikana, þótt enn væri of snemmt að segja til um hvenær Vance myndi tilkynna framboð eða hvenær Trump myndi lýsa yfir stuðningi opinberlega. Aðrir ráðgjafar eru á öndverðum meiði og segjast í samtali við Post að þeir séu ekki sannfærðir um að Trump sé ákveðinn í að styðja Vance. Forsetinn segir mismunandi hluti við mismunandi fólk.
Donald Trump Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2028 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Sjá meira