Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 09:00 Joe Biden var forseti Bandaríkjanna. EPA Hunter Biden, sonur fyrrverandi Bandaríkjaforseta Joe Biden, segir það ekki hafa verið góða ákvörðun fyrir Bandaríkin að faðir hans náðaði hann fyrir brot gegn vopna- og skattalögum. Það hafi neikvæð áhrif á arfleið Joe Biden.
Þetta segir Hunter í viðtali við BBC Newsnight. Árið 2024 var Hunter dæmdur fyrir brot á vopnalögum þegar hann laug á eyðublaði að hann væri ekki í virkri neyslu þegar hann keypti sér skammbyssu árið 2018. Byssuna átti hann í ellefu daga. Hunter var í aktívri krakkneyslu á þessum tíma. Hunter var sakfelldur fyrir brotið og brot gegn skattalögum. Hann átti yfir höfði sér 25 ára dóm vegna vopnalagabrotsins og 17 ára dóm fyrir skattalagabrotin. Dómurinn féll sumarið 2024 og átti að gera Hunter refsingu í desember. Áður en það var gert náðaði Joe Biden, þá Bandaríkjaforseti, son sinn þrátt fyrir að hafa fullyrt fyrr á árinu að hann myndi ekki gera það. „Þetta er eitthvað sem er auðvelt að gagnrýna og skiljanlega,“ sagði Hunter. Hann spurði samt hvað þjóðin hefði hugsað um föður hans hefði hann ekki náðað son sinn. „Þetta er ekki sanngjarnt. Eina sem ég veit er að ég er mjög þakklátur fyrir það að hann gerði þetta fyrir mig.“ Hunter Biden segir krabbamein föður síns hafa versnað.EPA Hunter segir að þeir feðgar hafi aldrei talað um möguleikann á náðun áður en Joe náðaði hann. Ástæðan var að Joe óttaðist að Hunter yrði fórnarlamb ríkisstjórnar Donalds Trump sem var þá nýkjörinn Bandaríkjaforseti og tók við mánuði eftir náðunina. Krabbameinið hefur dreift sér Hunter ræddi einnig heilsu föður síns sem greindist með illkynja krabbamein í blöðruhálskirtli fyrir rúmu ári síðan. „Krabbameinið hefur dreift sér, myndað meinvörp í beinum hans og víðar. Það er mjög sársaukafullt,“ segir Hunter. „Það eina sem ég segi um pabba minn, um heilsu hans núna, er að ég vildi að hann myndi kvarta meira.“ Spurður hvað gerði hann stoltastan af föður sínum benti Hunter Biden ekki á ár hans í opinberu embætti heldur á seiglu hans. „Hann er harðasti maður sem ég þekki.“
Joe Biden Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira