Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar 10. ágúst 2026 14:32 Það er fastur og dýr punktur í íslenskri stjórnun að fresta vandanum þar til hann verður að neyðarástandi. Skortur á framtíðarsýn veldur því að við byggjum nánast undantekningarlaust of lítið og of seint. Hólmsheiði er tiltölulega nýtt fangelsi, en það er þegar yfirfullt og sprungið. Þegar nýtt tekur við af því eldra hér á landi er það strax orðið úrelt, vegna þess að ákvarðanir eru teknar til skamms tíma í senn í stað þess að skipuleggja og tryggja innviði landsins til næstu tveggja eða þriggja áratuga. Vandinn liggur ekki síst í því að það skortir að stjórnmálamenn hafi raunverulega reynslu af þeim málaflokkum sem þeir taka að sér, eða hafi sér við hlið fólk sem hefur unnið innan kerfisins á sem víðtækustum fleti. Þótt sýn ráðherra geti verið skýr, þá étur báknið og kerfið sjálft oft upp áherslur stjórnmálamannsins. Það er því ekki bara við pólitíkina eina að sakast, kerfið sjálft þarfnast algjörrar endurskoðunar og nýrrar forgangsröðunar. Sem lögmaður sé ég dæmin um þetta daglega. Íslenska fangelsiskerfið er í molum og það blasir við öllum sem til þekkja. Auðvitað eru fleiri innviðir sem eiga undir högg að sækja, en staðreyndin er sú að við höfum í of langan tíma vanrækt fangelsismálin og falið okkur á bak við innantóma kröfu um hagræðingu. Hagræðing í þessu kerfi eins og staðan er í dag mun aðeins skila okkur fleiri og stærri vandamálum inn í framtíðina. Litla-Hraun, sem upphaflega var stofnað árið 1929, er ekki boðlegt nokkrum manni lengur. Húsnæðið er í niðurníðslu og hreinlega heilsuspillandi vegna myglu og slæms loftbúnaðar fyrir alla þá karlfanga sem þar dvelja og þá starfsmenn sem þar vinna. Aðstaða fyrir heimsóknir er léleg og ófullnægjandi, og aðbúnaður bæði fanga og fangavarða er með öllu óviðunandi. Öryggismál kerfisins eru í reynd í lamasessi. Þótt reynt sé að draga dul á það opinberlega, vitum við sem mætum í fangelsin að þau eru undirmönnuð, skortir nútíma tækni og þau standa frammi fyrir vaxandi hörku og ofbeldi innan veggjanna. Alvarlegasta dæmið um þessa vanrækslu lýtur þó að heilbrigðis- og sálfræðiþjónustu. Ríkisendurskoðun hefur í stjórnsýsluúttekt sinni gert alvarlegar athugasemdir við þetta fyrirkomulag. Staðreyndin er sú að hjá Fangelsismálastofnun starfa aðeins fjórir sálfræðingar í samtals þremur stöðugildum fyrir öll fangelsi landsins. Það sjá allir að þrjú stöðugildi geta með engu móti sinnt raunverulegri meðferðarvinnu fyrir mörg hundruð fanga á ári. Sálgæsla og geðheilbrigðisþjónusta, sem ætti að vera í algjörum forgangi við að hjálpa mönnum að byggja upp nýtt líf, er nánast fjarverandi. Sú þjónusta sem fangar fá í dag er því miður of oft fólgin í því að lyfja einstaklinga niður frekar en að veita þeim almennilega sálfræðilega viðtalsmeðferð. Þetta er ekki bara ómannúðlegt, þetta er stjórnunarleg hneisa. Markmiðið með fangelsisvist samkvæmt lögum á að vera skýrt; að veita þeim sem þess óska tækifæri og tól til ábyrgðar og farsællar endurkomu út í samfélagið. Mönnum hættir til að falla aftur í sama afbrotamynstrið þegar þeir þekkja ekkert annað. Þetta á sérstaklega við um unga gerendur sem við sjáum í auknum mæli í skipulagðri brotastarfsemi og ofbeldisverkum í dag. Ef kerfið vinnur ekki gegn þessu á meðan á afplánun stendur, fáum við þessa einstaklinga beint aftur út í samfélagið án betrunar. Lausnin felst ekki í innantómum loforðum um þyngri dóma. Hún felst í því að þora að byggja upp kerfi sem tekur við þeim sem brjóta af sér með það markmið að endurreisa þessa einstaklinga þannig að þeir sjái sjálfir hag í því að vinna sig upp úr þeim vítahring sem þeir eru fastir í. Stjórnvöld hafa of lengi látið þennan málaflokk mæta afgangi. Ef ekkert verður gert strax innan næstu fimm ára eigum við eftir að sjá mjög flókin, dýr og erfið úrlausnarefni í samfélaginu sem tengjast þessu beint. Við þurfum ekki fleiri tímabundna plástra. Við þurfum ákveðni og alvöru forystu sem byggir á raunverulegri reynslu og þorir að hanna kerfin okkar til framtíðar. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sævar Þór Jónsson Fangelsismál Mest lesið Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun The EU’s reduced attractiveness for prosperous countries Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun