Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ Samúel Karl Ólason skrifar 10. ágúst 2026 19:19 Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði. Hann segir einhvern vendipunkt hafa átt sér stað árið 2020 hvað varðar fjölda manndrápsmála hér á landi. Þá hafi þeim fjölgað mjög en erfitt sé að segja til um af hverju. Vísir/Vilhelm Einhver breyting virðist hafa átt sér stað hér á landi, hvað varðar manndrápsmál, um árið 2020. Þá fór slíkum málum að fjölga töluvert en erfitt er að greina einhverjar ástæður fyrir því. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, segir eðli manndrápa hér á landi enn á þann veg að gerandi og fórnarlamb tengist með einhverjum hætti.
Rætt var við Helga í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Helgi sagði að í okkar tiltölulega fámenna samfélagi væri eðlilegt að hvert mannsdráp hreyfði við okkur. Sögulega séð hefðu þau verið fátíð hér og með þeim fátíðari í Vestur-Evrópu. Frá aldamótum til 2020 hafi um tvö manndráp átt sér stað hér á landi að ári hverju. Hins vegar hafi orðið einhver vendipunktur um 2020 og eftir það. „Þá höfum við séð aukningu,“ sagði Helgi. „Við getum séð þetta á því að frá 2020 og eiginlega fram á þennan dag, erum við með kannski fjögur manndráp á ári, að jafnaði. Þar stendur kannski árið 2024 út úr, með alls átta manndrápum það ár.“ Þau hafi verið heldur færri 2025 en á þessu ári séu þau orðin tvö, eða jafnvel þrjú. „Þannig að við höfum verið að sjá dálítið nýja mynd varðandi manndrápstíðni eftir 2020.“ Helgi segist hafa velt því talsvert fyrir sér hvað það sé sem gerist um 2020. Það fyrsta sem hann staldri við sé að þá hafi faraldur Covid verið að byrja. Mögulegt sé að skert aðgengi að heilbrigðisþjónustu eða félagslegri þjónustu hafi spilað eitthvað inn í. „Ef við lítum til annarra landa, þá vitum við það að rannsóknir sýna að Covid-faraldurinn hafði áhrif á ofbeldi, sérstaklega í nánum samböndum. Þar sáu menn ákveðna aukningu.“ Þetta segir Helgi einn þátt sem hann hafi velt fyrir sér og reynt að meta. Það sé þó erfitt að segja til um bein áhrif en geti verið áhrifaþáttur. Sjá einnig: Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Helgi bendir einnig á að samfélagsmynd Íslands hafi tekið breytingum á undanförnum árum og áratugum. Fólki hafi fjölgað mjög og innviðir hafi kannski ekki mætt þeirri fjölgun að fullu. Þar sé ýmislegt sem þurfi að skoða varðandi félagslega og efnahagslega stöðu fólks. Þá nefnir hann sérstaklega eðli þessara manndrápa og hvort þar hafi orðið miklar breytingar. Hann hafi verið að reyna að greina það en erfitt sé að sjá miklar breytingar. Í langflestum tilfellum séu menn að bana öðrum mönnum. „Þetta eru iðulega, mestmegnis, karlar að drepa aðra karla.“ Ekki hafi heldur sést breytingar á því hvernig manndrápin séu framin. Í flestum tilfellum séu eggvopn notuð eða menn séu barðir til dauða eða kyrktir. Því næst nefnir Helgi að skipulögð brotastarfsemi sé að færast í aukana og að hægt sé að rekja ákveðin manndrápsmál til þeirra. „Samt í það heila tekið, þá eru þetta enn manndráp sem eiga sér stað milli aðila sem tengjast með einhverjum hætti. Það er að segja það eru kannski náin sambönd, vinnufélagar eða félagar, einhvers konar uppgjör eða slíkt sem einkennir þessi manndráp.“ Þar sé ekki heldur að sjá miklar breytingar. Helgi segir að víða þar sem manndráp tengd skipulagðri glæpastarfsemi séu ríkjandi, eigi þau til að vera ekki upplýst. Slík mál eru ekki mörg hér á Íslandi. Helgi segir manndrápsmál yfirleitt alltaf leysast. Hlusta má á viðtalið við Helga í spilaranum hér að neðan. Meðal annars ræddi Helgi einnig upplýsingagjöf lögreglunnar hér á landi, í samanburði við lögreglu erlendis í tengslum við alvarleg brot.
Lögreglumál Manndráp á Blönduósi Manndráp á Gýgjarhóli II Manndráp á Hagamel Manndráp á Reykjavík Edition Manndráp á Ólafsfirði Manndráp í Barðavogi Manndráp í Bátavogi Manndráp í Drangahrauni Manndráp í Gufunesi Manndráp í Kiðjabergi Manndráp í Naustahverfi á Akureyri Manndráp í Sandgerði Manndráp í Súlunesi Morð í Rauðagerði Morðið á Birnu Brjánsdóttur Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira