Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Samúel Karl Ólason skrifar 10. ágúst 2026 22:21 Einn rússneskur njósnari á fundi með útsendara sínum á krá í Svíþjóð. Á myndinni má sjá poka með gjöf sem Rússinn færði hinum. Säpo Forsvarsmenn Sænsku öryggislögreglunnar Säpo segja að komið hafi verið í veg fyrir ráðabrugg rússneskra njósnara og útsendara þeirra úr sendiráði ónefnds Evrópuríkis. Markmið Rússanna mun hafa verið að hafa áhrif á stjórnmál í Svíþjóð og að kasta rýrð á ríkisstjórnina, Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið.
Tveir rússneskir njósnarar sem hafa verið undir eftirliti Säpo eru sagðir vera starfsmenn leyniþjónustunnar SVR, sem er rússneska leyniþjónustan sem starfar á erlendri grundu. Það er öfugt við FSB (arftaka KGB) sem starfar eingöngu innan Rússlands, svipað og Säpo gerir í Svíþjóð. Njósnararnir voru, samkvæmt tilkynningu frá Säpo, á höttunum eftir upplýsingum um æðstu ráðamenn í Svíþjóð. Þær upplýsingar vildu þeir og aðrir hjá SVR nota til að grafa undan stjórnvöldum í Stokkhólmi, auk annars. Sjá einnig: Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Málið er litið mjög alvarlegum augum í Svíþjóð en njósnararnir eru sagðir hafa átt lengi í samskiptum við útsendara þeirra, sem starfaði í sendiráði annarrar ónefndrar evrópskrar þjóðar. Sá er sagður hafa aflað upplýsinga fyrir Rússa en starfsmenn Säpo hafa fylgst með ferðum þeirra og fundum. Rússneskur njósnari á gangi með útsendaranum.Säpo Einn fundur átti sér stað á krá, eins og sjá má á efstu myndinni með þessari frétt. Þangað mætti annar rússneski njósnarinn með poka sem hann gaf útsendara sínum, samkvæmt frétt sænska ríkisútvarpsins. Áður en þeir mættu á fundinn eru mennirnir sagðir hafa reynt að komast á hann með því að fara huldu höfði og reyna að tryggja að enginn væri að fylgjast með þeim. Það heppnaðist ekki. Fyrr á árinu vöruðu forsvarsmenn Säpo við því að ógnin frá Rússlandi væri töluverð og þá að mestu í formi fjölþátta ógna. Fjölmörg grunsamleg atvik væru til rannsóknar í Svíþjóð sem grunur léki á að rekja mætti til Rússlands. Sjá einnig: Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Christoffer Wedelin, einn æðstu yfirmanna Säpo, sagði í samtali við SVT að Svíar væru með skýra mynd af því hvaða verkefni njósnarinn hefði gefið útsendara sínum. Eftirlitið með njósnaranum hefði einnig veitt Säpo mikla innsýn í störf rússneskra njósnara í Svíþjóð. Hann vildi þó ekki fara nánar út í það. Báðum rússnesku njósnurunum og útsendara þeirra hefur verið vísað úr landi. Rússarnir störfuðu í skjóli friðhelgi erindreka og er því ekki hægt að sækja þá til saka. Sjá einnig: Ný sveit njósnara leiðir skuggastríð Rússa Í einföldu máli sagt eru njósnarar að mestu tvenns konar. Annars vegar eru njósnarar sem starfa hjá sendiráðum Rússlands víða um heim. Þeir njóta friðhelgi sem erindrekar en á móti kemur að starfsmenn öryggisstofnana þeirra ríkja sem þeir starfa í eru líklegir til að hafa eftirlit með þeim. Frá því Rússar gerðu innrás í Úkraínu 2022 hefur þeim verið gert að fækka verulega fjölda starfsmanna í sendiráðum þeirra í Evrópu. Það hefur verið gert til að fækka rússneskum njósnurum. Sjá einnig: Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Hins vegar eru svo njósnarar sem fara huldu höfði, oft með falskan bakgrunn þar sem þeir hafa skapað sér nýtt líf undir dulnefni. Í fyrra sviptu yfirvöld í Bandaríkjunum og í Brasilíu hulunni af því að Rússar hefðu um árabil notað Brasilíu sem einskonar verksmiðju fyrir slíka njósnara. Rússum tókst þar að skapa ítarlega tilbúna bakgrunna njósnara sinna, með opinberum skjölum sem erfitt er að falsa.
Svíþjóð Rússland Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira