Körfubolti

Berg­lind langstiga- og framlagshæst á EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Í þremur leikjum á EM U-16 ára er Berglind Katla Hlynsdóttir með 31,7 stig, 8,7 fráköst, 5,0 stoðsendingar, 5,0 stolna bolta og 3,0 varin skot að meðaltali.
Í þremur leikjum á EM U-16 ára er Berglind Katla Hlynsdóttir með 31,7 stig, 8,7 fráköst, 5,0 stoðsendingar, 5,0 stolna bolta og 3,0 varin skot að meðaltali. kkí

Frammistaða Stjörnukonunnar ungu, Berglindar Kötlu Hlynsdóttur, í B-deild Evrópumóts kvenna U-16 í körfubolta hefur vakið verðskuldaða athygli. Hún er á toppnum í mörgum tölfræðiþáttum mótsins og er meðal annars langstigahæsti leikmaður þess.

Berglind og stöllur hennar í íslenska liðinu hafa unnið alla þrjá leiki sína á EM. Ísland mætir heimaliði Grikklands í úrslitaleik um sæti í A-deild Evrópumótsins í dag.

Berglind hefur skorað 95 stig í leikjunum þremur á EM, eða 31,7 stig að meðaltali í leik. Hún er langstigahæst á mótinu en næst kemur Mille Boje Sorensen frá Danmörku með 19,7 stig.

Sé litið til framlagsstiga í leik er Berglind líka langefst á blaði þar. Hún er með 32,0 framlagsstig að meðaltali í leik en Sorensen kemur þar á eftir með 21,7 framlagsstig.

Rún Sveinbjörnsdóttir úr Val er þriðji framlagshæsti leikmaður EM með 18,3 framlagsstig í leik.

Berglind er einnig stoðsendingahæst á EM með 5,0 stoðsendingar að meðaltali í leik en Rún, Stjörnukonan Eva Óladóttir og hin norska Mia Omland koma næstar með 4,0 stoðsendingar í leik.

Berglind og stöllur hennar í íslenska liðinu eru aðeins einum sigri frá því að komast upp í A-deild Evrópumótsins.kkí

Berglind er fimmta á listanum yfir flest fráköst að meðaltali í leik á EM (8,7). Eva Ingadóttir úr Haukum er í 3. sæti frákastalistans með níu fráköst að meðaltali í leik.

Þá er Berglind með flest varin skot að meðaltali á EM (3,0 í leik) og næstflesta stolna bolta (5,0 í leik). Rún hefur stolið boltanum oftast á EM, eða sex sinnum að meðaltali í leik.

Berglind hefur ekki setið auðum höndum í sumar en hún spilaði einnig með U-20 ára landsliðinu á í A-deild Evrópumótsins. Ísland endaði þar í 12. sæti.

Berglind var sjötti stigahæsti leikmaður mótsins með 17,3 stig að meðaltali í leik. Hún tók einnig 3,7 fráköst, gaf 3,4 stoðsendingar og skilaði fimmtán framlagsstigum að meðaltali í leik þrátt fyrir að spila fjögur ár upp fyrir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×