Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Lovísa Arnardóttir skrifar 12. ágúst 2026 13:05 Það hefur verið stóraukin umferð um göngin síðustu daga. Vísir/Vilhelm Ef umferð snareykst í Hvalfjarðargöng gæti þurft að loka þeim tímabundið í dag. G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir umferð ganga vel og hún hafi dreifst vel síðustu daga. Hann eigi ekki endilega von á því að Vegagerðin muni þurfa að grípa til lokana en það geti gerst. „
Þetta en þetta hefur eftir því sem ég kemst næst gengið bara allt saman mjög vel og umferðin hefur greinilega dreifst vel á marga daga. Þeir sem voru að fara lengst hafa alveg örugglega byrjað bara strax á sunnudaginn að fara á Vestfirðina, þannig að það var greinileg aukin umferð vestur á sunnudag, mánudag og þriðjudag og reyndar líka svo sem núna. Það er heilmikil umferð um Hvalfjarðargöngin og er að dreifast vestur, bæði alla leið vestur og á Snæfellsnes í auknum mæli í dag og í gær.“ Hann segir Hvalfjarðargöngin undir sérstöku eftirliti og þeim verði lokað skapist ákveðnar aðstæður. Við göngin eru öryggistæki beggja megin til að draga bíla og starfsfólk í vaktstöð sem fylgist náið með stöðunni. „Það er náttúrulega tvennt, að við viljum ekki átta marga bíla ofan í göngunum í einu og hæga umferð. Ef mengunarmörkin fara yfir ákveðið stig þá bara verðum við að loka,“ segir hann og það yrði tímabundið og fólki vísað í Hvalfjörðinn á meðan. Hann segir þessar aðstæður, miðað við stöðuna í dag, nokkuð ólíklegar og myndu líklega aðeins eiga sér stað ef veðurspáin breyttist skyndilega á Akranesi og fjöldi myndi leggja af stað þangað síðdegis. Vegagerðin fylgist vel með þessu. Óvissa deildarmyrkvamegin Eins og fram hefur komið sést almyrkvinn ekki alls staðar, en deildarmyrkvinn gerir það. Pétur segir óvissu í því hvort fólk sem búi deildarmyrkvamegin ætli sér að ferðast nær almyrkva en líklegt sé að umferð um, til dæmis Hellisheiði, myndi þá þyngjast síðdegis í dag. Hann segir annars umferð hafa gengið vel í dag. Það hafi skapast tímabundnar tafir við framkvæmdasvæði á Dynjandisheiði en það sé búið að leysa úr því. Víða eru vegalokanir og einstefna en hægt er að lesa um það hér. Umferð gæti orðið þung í kvöld Pétur segir svo kvöldið í kvöld næstu óvissu, eftir almyrkvann. „Ef allir ætla heim til sín þá er alveg ljóst að það verður miklu hægari umferð og verður miklu þyngri heldur en verið hefur núna af því að umferðin hefur dreifst svo mikið, en það má svo kannski gefa sér vonir um að fólk sem er að fara vestur í sumarfrí sé ekkert endilega að rjúka af stað alla leið suður eftir klukkan sex í dag, þannig að við erum svo sem að vonast til þess að það verði einhver dreifing á umferðinni til baka líka.“
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Hvalfjarðargöng Hvalfjarðarsveit Veður Umferð Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira