Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Valur Páll Eiríksson skrifar 13. ágúst 2026 10:00 Álvaro Arbeloa tók við Fulham í sumar. Lars Baron/Getty Images Eitthvað virðist Álvaro Arbeloa, þjálfari Fulham, hafa verið illa fyrirkallaður er lið hans mætti Málaga á Spáni í Costa del Sol-bikarnum, æfingaleik milli liðanna tveggja.
Liðin áttust við á La Rosaleda, heimavelli Málaga í gærkvöld, og leiknum lauk með 2-2 jafntefli. Málaga skoraði jöfnunarmark seint í leiknum sem Arbeloa var einkar ósáttur við, og virtist hafa eitthvað til síns máls. Málaga jafnaði úr víti í uppbótartíma sem virkaði sem heldur ódýr dómur. Hann lét dómara leiksins heyra það og var vísað upp í stúku. Leiknum lauk 2-2 og ætluðu leikmenn Málaga þá að útkljá Costa del Sol-bikarinn með vítakeppni. 2-2 Insólito final del Trofeo Costa del Sol. El Málaga empató en el 90 tras unas manos claras del central Bassey. Arbeloa fue expulsado por protestarla y el equipo inglés se retira del campo y no va a la tanda de penaltis. Eneko Jauregui hace el “gol” del triunfo. Pésimo Arbeloa pic.twitter.com/Wem5lASVfw— Javier Bautista (@fjbautista) August 12, 2026 Leikmenn Fulham gengu hins vegar af velli án þess að taka þátt í henni, leikmaður Málaga tók eitt víti í tómt mark, skoraði og heimamenn fögnuðu. Fulham greindi eftir á frá því að vítaspyrnukeppni hefði ekki verið í samningum milli félaganna í aðdraganda leiksins. Fulham hafi átt flug fljótlega eftir leik og menn hafi einfaldlega þurft að drífa sig út á flugvöll, og ekki haft tíma í keppnina. Hoy, el conocido entrenador Álvaro Arbeloa ha sido expulsado contra el Málaga. Su equipo, el Fulham, se ha negado a jugar la tanda de penaltis debido a que "no estaba en el contrato". El Málaga ha ganado el torneo de la Costa del Sol tirando los penaltis sin el portero rival. pic.twitter.com/gwNOAwlAGv— Fonsi Loaiza (@FonsiLoaiza) August 12, 2026 Arbeloa tók við Fulham í sumar eftir að hafa klárað síðasta tímabil sem bráðabirgðastjóri Real Madrid. Hann tekur við af Marco Silva sem tók við sem þjálfari Benfica í Portúgal. Fulham hefur unnið Newcastle og Farense í æfingleikjum fyrir jafnteflið í gær og mætir næst Stuttgart í síðasta æfingaleik sumarsins á laugardag á Craven Cottage. Arbeloa mætir gömlum félaga, Xabi Alonso, sem hann tók við af hjá Real Madrid síðasta vetur, í fyrstu umferð deildarinnar er Fulham mætir Chelsea í Lundúnaslag. Um verður að ræða fyrsta leik beggja sem stjóri í ensku úrvalsdeildinni en þeir léku saman með Liverpool í deildinni á sínum tíma, auk þess sem þeir spiluðu saman í nokkur ár hjá Real Madrid og með spænska landsliðinu.
Fulham FC Spænski boltinn Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjá meira