Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja Lovísa Arnardóttir skrifar 13. ágúst 2026 10:13 Embla Bachmann ásamt bókinni Stelpur stranglega bannaðar sem hún gaf út árið 2023. Vísir/Ívar Fannar Embla Bachmann, rithöfundur og dagskrárgerðarkona, segir mörgu ungu fólki þykja þægilegra að svara skilaboðum en símtölum því það hafi þá tíma til að hugsa svar sitt. Sjálf þjálfaði hún sig í símtölum og þykir þau ekki tiltökumál í dag. Embla var til viðtals í Bítinu um símtalafælni ungs fólks. „
Ég þurfti að þjálfa mig í þessu. Ég vinn við það að heyra í fólki og þá komst ég að því að þetta er aðeins fljótlegri leið, allavega með fullorðið fólk,“ segir hún en að hennar upplifun sé að þetta sé kynslóðaskipt. Hún, og hennar kynslóð, sé alin upp við það að senda skilaboð á ólíkum miðlum eins og SnapChat og öðrum samfélagsmiðlum. „Við hreinlega erum alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja,“ segir Embla. Hún segist muna eftir heimasímanum og að hún hafi ekki mátt hringja í vinkonur sínar fyrr en klukkan 11 um helgar. „En upp úr sjöunda bekk eru þetta bara skilaboð.“ Hún segir það alveg koma fyrir að hún hringi í vini sína eða vinkonur en það sé persónubundið og fari eftir því hvort einstaklingurinn sé fljótari að svara í skilaboðum eða símtali og hvort þeim þyki það þægilegt. „Ég á vinkonur sem eru miklu fljótari að svara skilaboðum,“ segir hún og að það gildi til dæmis ef fólk er upptekið hvort á sínum tímanum. Geta svarað á eigin forsendum „Ef ég á lausa stund í vinnunni og hringi í vinkonu mína sem er í vinnunni þá getur hún ekki svarað og öfugt, en ef ég sendi henni skilaboð á meðan ég er laus getur hún kíkt á þau á meðan hún er laus,“ segir hún. Það sé líka hægt að opna skilaboðin og svara þeim á sínum forsendum og skrifa. Embla segir raddskilaboðin milliveg, það sé hægt að opna þau þegar þú hefur tíma og þú getur hugsað svar. „Ég veit að mörgum vina minna finnst það þægilegt, þá geturðu hlustað á skilaboðin oft, án þess að biðja aðilann að endurtaka sig,“ segir hún og að þá hafi fólk tíma og rými til að til dæmis kíkja í dagatalið og svara svo. Má alveg hringja Embla segir að það megi alveg hringja og að þetta sé að einhverju leyti mýta. Fólk sem hún hafi talað við í aðdraganda viðtalsins hafi verið jákvætt fyrir því en tekur þó aftur fram að það sé algjörlega persónubundið. „Margir eru tregir að svara fyrirtækjanúmerum, ókunnugum númerum,“ segir hún og að sjálf sé hún mjög snögg að setja inn númerið á ja.is til að sjá hver er að hringja og ákveði þá hvort hún ætli að svara. Hún segist meira til í að svara ef númerið er GSM-númer. „Ef maður þekkir aðilann vel þá er maður alveg til í að hringjast á milli,“ segir hún.
Bítið Símanotkun barna Tækni Fjarskipti Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira