Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar 14. ágúst 2026 07:01 Daði Már vitnar í fjórtán ára gamla greiningu Seðlabanka Íslands en sleppir því að sami banki hefur síðan endurmetið höggdeyfihlutverk krónunnar — fyrst 2017 og nú aftur með gögnum til 2025. Jóhann Páll byggir sömuleiðis á þeirri mynd að höggdeyfihlutverkið sé veikt án þess að nefna nýrra mat bankans. Ef málstaður stjórnvalda er góður ætti hann að þola allar staðreyndir — ekki aðeins þær sem henta pólitískum málflutningi. Ef bera á evruna saman við krónuna á að bera hana saman við peningakerfið sem Ísland rekur í dag. Ekki við reynsluna fyrir hrun. Í grein sinni Sverð Íslands og skjöldur vísar Daði Már Kristófersson réttilega til skýrslu Seðlabankans frá 2012 og vitnar í hana: „Sveigjanlegt gengi krónunnar virðist ekki nýtast við að verja innlendan þjóðarbúskap“ fyrir slíkum sveiflum. [1] Tilvitnunin er rétt. Vandinn er það sem ekki fylgir með því að það breytir sögunni. Skýrslan byggir á sögulegum gögnum sem ná til síðustu aldar og meðal annars aftur fyrir upptöku verðbólgumarkmiðs 2001 og yfir fyrirhrunsárin. Hún varar sjálf við því að niðurstöðurnar þurfi ekki að endurspegla núverandi aðstæður eða framtíðarsamspil efnahagsskella og gengisstefnu. [2] Eftir hrun var framkvæmd peningastefnunnar endurbætt og þegar árið 2017 sagði Seðlabankinn að sveigjanlegt gengi „virkaði betur en áður til sveiflujöfnunar“. Bankinn tengdi breytinguna meðal annars við nýja framkvæmd peningastefnunnar eftir fjármálakreppuna. [3] Á þessu ári uppfærði Seðlabankinn síðan greininguna með gögnum til 2025. Niðurstaðan er skýr: eftir hrun endurspeglar stærri hluti gengishreyfinga raunverulega framboðs- og eftirspurnarskelli en áður, en áhrif peningastefnuskella og gengisáhættu hafa minnkað. Mat bankans er að geta krónunnar til að virka sem höggdeyfir hafi aukist eftir hrun. [4] Bankinn bendir meðal annars á ferðaþjónustuuppsveifluna 2012–2018. Ferðamönnum fjölgaði úr 0,7 í 2,3 milljónir, þjónustuútflutningur jókst um 72% og krónan styrktist um 33%. Seðlabankinn lýsir þessu sem skýru dæmi um gengið sem höggdeyfi. [4] Þegar Covid skall á snerist áfallið við. Þjónustuútflutningur féll um 60% og útflutningssamdrátturinn var margfalt meiri hér en á hinum Norðurlöndunum. Seðlabankinn telur krónuna aftur hafa gegnt mikilvægu hlutverki í aðlöguninni. [4] Þetta er nýrra mat sama Seðlabanka og Daði Már vitnar til. Hann minnist hvorki á endurmatið frá 2017 né uppfærsluna til 2025. Jóhann Páll og fiskarnir Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra skrifaði nýlega á Vísi: „Veikari króna býr ekki til meiri fisk eða nýtt álver.“ [5] Á eflaust að vera fyndið. En þetta er fyrst og fremst klassískur strámaður í anda Morfís: sett er fram fullyrðing sem enginn hefur haldið fram og hún síðan hrakin með tilþrifum. Enginn heldur því fram að gengislækkun fjölgi fiskum eða reisi álver. Vandinn er sá sami og hjá Daða Má. Jóhann Páll dregur upp mynd af því að höggdeyfihlutverk krónunnar sé takmarkað án þess að nefna að Seðlabankinn hefur, fyrst fyrir um áratug og í ár með uppfærðum gögnum, komist að annarri niðurstöðu. Eru ráðherrarnir ósammála Seðlabanka Íslands? Þá væri eðlilegt að þeir segðu það og færðu rök fyrir því. Seðlabankinn bendir jafnframt á að framleiðslutakmarkanir í sjávarútvegi og áliðnaði eyði ekki tekjuáhrifum gengisbreytinga. Gengið virkar einnig í gegnum innflutning, tilfærslu eftirspurnar til innlendrar framleiðslu og aðrar útflutningsgreinar. [4] Segið alla söguna Í siðareglum ráðherra segir að upplýsingum skuli miðlað af „nákvæmni, heilindum og með skýrum hætti“ og að ráðherra hafi frumkvæði að því að leiðrétta rangar eða villandi upplýsingar. [6] Því er lausnin einföld. Daði Már getur sagt frá því að Seðlabankinn endurmat niðurstöðuna frá 2012 þegar árið 2017 og hefur nú uppfært greininguna til 2025. Telji hann nýrra mat bankans rangt getur hann útskýrt hvers vegna. Jóhann Páll getur gert hið sama. Ef málstaður stjórnvalda fyrir evru er góður á hann að þola nýjustu gögn og núverandi mat Seðlabanka Íslands. Hann á ekki að þurfa aðeins þær staðreyndir sem henta sögunni. Kjósendur eiga betra skilið. Höfundur er fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands og doktor í hagfræði. Heimildir [1] Daði Már Kristófersson, Sverð Íslands og skjöldur, Vísir, 12. ágúst 2026. [2] Seðlabanki Íslands, Valkostir Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum, Sérrit nr. 7, 2012. [3] Seðlabanki Íslands, Peningastefna byggð á verðbólgumarkmiði: Reynslan á Íslandi frá árinu 2001 og breytingar í kjölfar fjármálakreppunnar, Sérrit nr. 11, 2017. [4] Seðlabanki Íslands, Comments on the draft Report on Iceland’s Currency Regime, 2026. [5] Jóhann Páll Jóhannsson, Höggdeyfir fyrir hverja?, Vísir, 9. ágúst 2026. [6] Siðareglur ráðherra, nr. 309/2025. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Seðlabankinn Íslenska krónan Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun