Mangione sagður ætla að játa Samúel Karl Ólason skrifar 13. ágúst 2026 22:01 Luigi Mangione í dómsal í New York í vikunni. Hann er sagður ætla mögulega að játa á morgun. AP/Steven Hirsch, New York Post Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa ráðið Brian Thompson, forstjóra tryggingafélagsins UnitedHealthcare, af dögum, er sagður ætla að játa. Lögmenn hans hafa átt í viðræðum við alríkissaksóknara en játning á alríkissvæðinu gæti verið notuð til að fá ákærur New York-ríkis gegn hinum meinta morðingja felldar niður.
Mangione, sem er 28 ára gamall, sat fyrir Thompson fyrir utan hótel í New York í desember þar sem forstjórinn var að halda fjárfestaráðstefnu. Myndband sýndi hann ganga á eftir forstjóranum og skjóta hann nokkrum sinnum í bakið með þrívíddarprentaðri byssu með hljóðdeyfi. Hann flúði svo til Pennsylvaníu þar sem hann var handtekinn. Þá fundust í fórum hans stílabók þar sem hann á að hafa skrifað um morðið, réttlætingu á því og hvernig hann gæti framkvæmt það. Sjá einnig: Skrifaði um að drepa „baunateljara“ Á þeim grunni að Mangione ferðaðist milli ríkja var hægt að taka málið fyrir á alríkissviðinu, auk þess sem hann var ákærður af New York-ríki. Ákærurnar í báðum málum hafa tekið nokkrum breytingum að undanförnu. Í alríkismálinu stendur Mangione frammi fyrir ákærum um umsáturseinelti sem leiddi til dauða, eftir að ákæru fyrir manndráp var vísað frá. Í New York-málinu hefur hann verið ákærður fyrir morð og önnur brot. Í báðum málum stendur hann frammi fyrir lífstíðarfangelsi, þar sem dauðarefsingin hefur verið tekin af borðinu af dómurum. Hryðjuverkaákærur hafa einnig verið felldar niður í ríkismálinu. Mangione hefur einnig verið ákærður fyrir skjalafals í Pennsylvaníu. Hann hefur hingað til neitað sök gagnvart öllum ákærum í öllum málum. Til stendur að hefja réttarhöldin í ríkismálinu í september en réttarhöldin í alríkismálinu eiga að hefjast í janúar. Saksóknarar hafa þó verið að deila um það hvor réttarhöldin eigi að vera á undan. Gæti játað og reynt að fá hitt málið fellt niður Samkvæmt heimildarmanni AP fréttaveitunnar stendur til að Mangione játi í dómsal á morgun, föstudag. Þá á hann að mæta í dómsal í alríkismálinu. Heimildarmaður AP segir að Mangione gæti skipt um skoðun en lögmenn hans neituðu að tjá sig við blaðamenn fréttaveitunnar. Einnig er óljóst nákvæmlega hvað hann gæti játað. New York Times hefur einnig heimildir fyrir því að hann ætli mögulega að játa á morgun en það virðist velta á því hvort samkomulag náist milli lögmanna hans og alríkissakóknara. Lögmenn hans hafa átt í viðræðum við saksóknara um mögulega lausn á málinu. Fyrstu slíku viðræðurnar féllu niður í júní. Um það leyti sögðu lögmennirnir að þeir ætluðu að verja Mangione á þeim grundvelli að hann ætti við geðræn vandamál að stríða en drógu það svo til baka. Samkvæmt lögum New York gæti málið gegn honum verið fellt niður á grunni banns við tvöfaldri málsmeðferð, ef réttarhöldin í alríkismálinu klárast á undan ríkisréttarhöldunum. Takist lögmönnum hans að semja um endalok á alríkismálinu, með játningu og samkomulagi um refsingu, gætu þeir farið fram á að réttarhöldin í New York yrðu felld niður. Lögmenn hans hafa gefið slíkt til kynna áður en saksóknarar mótmæltu því harðlega í síðasta mánuði.
Bandaríkin Forstjóri UnitedHealthcare myrtur Erlend sakamál Skotárásir í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Karlmaður hefur verið handtekinn fyrir að þykjast vera fulltrúi bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) til að frelsa Luigi Mangione úr haldi. Maðurinn var með pítsaskera í fórum sínum. 29. janúar 2026 22:12 Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Lögmenn Luigis Mangione, sem hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, í fyrra, segja að krafa Pam Bondi, dómsmálaráðherra, um dauðarefsingu sé ólögmæt. Hún hafi á árum áður starfað sem málafylgjumaður hjá fyrirtæki sem starfaði fyrir móðurfélag UnitedHealthcare. 20. desember 2025 16:44 Hryðjuverkaákærum vísað frá Dómari hefur vísað frá tveimur af ákærunum gegn Luigi Mangione, sem sakaður er um að hafa myrt Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, í fyrra. Ekki verður réttað yfir Mangione í New York fyrir hryðjuverk en morðákærur standa eftir. 16. september 2025 14:15 Vill fartölvu í fangelsið Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt Brian Thompson, forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, á götu úti í New York, vill hafa fartölvu í fangelsinu. Hann situr í alríkisfangelsi í New York en hann hefur verið ákærður fyrir morð og framkvæmd hryðjuverks. 25. mars 2025 22:17 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira
Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Karlmaður hefur verið handtekinn fyrir að þykjast vera fulltrúi bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) til að frelsa Luigi Mangione úr haldi. Maðurinn var með pítsaskera í fórum sínum. 29. janúar 2026 22:12
Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Lögmenn Luigis Mangione, sem hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, í fyrra, segja að krafa Pam Bondi, dómsmálaráðherra, um dauðarefsingu sé ólögmæt. Hún hafi á árum áður starfað sem málafylgjumaður hjá fyrirtæki sem starfaði fyrir móðurfélag UnitedHealthcare. 20. desember 2025 16:44
Hryðjuverkaákærum vísað frá Dómari hefur vísað frá tveimur af ákærunum gegn Luigi Mangione, sem sakaður er um að hafa myrt Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, í fyrra. Ekki verður réttað yfir Mangione í New York fyrir hryðjuverk en morðákærur standa eftir. 16. september 2025 14:15
Vill fartölvu í fangelsið Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt Brian Thompson, forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, á götu úti í New York, vill hafa fartölvu í fangelsinu. Hann situr í alríkisfangelsi í New York en hann hefur verið ákærður fyrir morð og framkvæmd hryðjuverks. 25. mars 2025 22:17