Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 10:21 Magnús tekur við starfi framkvæmdastjóra af Þóru Þórarinsdóttur sem gegndi starfinu í rúmlega 25 ár. Ás Styrktarfélag Ás styrktarfélag hefur ráðið Magnús Má Guðmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra BSRB, sem framkvæmdastjóra félagsins. Ás rekur búsetukjarna og sérhæfða vinnustaði fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu.
Starf framkvæmdastjóra Áss var auglýst í byrjun árs og var Magnús valinn úr hópi umsækjenda, segir í tilkynningu frá Ás styrktarfélagi. Magnús tekur við starfi framkvæmdastjóra af Þóru Þórarinsdóttur, sem gegnt hafði starfinu í 25 ár, eða frá árinu 2001 „Þóra lætur nú af störfum eftir farsælan feril og hefur átt stóran þátt í þróun og uppbyggingu félagsins á þeim rúmu tveimur áratugum sem hún hefur leitt það. Við hjá Ási styrktarfélagi þökkum Þóru fyrir framlag hennar og farsælt starf í gegnum árin,“ er haft eftir Þórði Höskuldssyni, formanni stjórnar Áss styrktarfélags, í tilkynningunni. Magnús hafi síðast starfað sem framkvæmdastjóri BSRB um sjö ára skeið og hafi auk þess gegnt fjölbreyttum störfum á starfsferli sínum, meðal annars sem borgar- og varaborgarfulltrúi, framhaldsskólakennari og blaðamaður. „Ég er virkilega spenntur fyrir þessu nýja hlutverki og þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt. Starfið leggst mjög vel í mig og það verður sérstaklega ánægjulegt að vinna með stjórn og öflugu starfsfólki að því að standa vörð um hagsmuni félagsins og byggja áfram á þeim góða grunni sem starfsemin stendur á,“ er haft eftir Magnúsi Má Guðmundssyni, nýráðnum framkvæmdastjóra Áss. Ás styrktarfélag var stofnað árið 1958 og rekur í dag sérhæfða vinnustaði fyrir fatlað fólk og tíu búsetukjarna á höfuðborgarsvæðinu. Ás styrktarfélag veiti um 300 manns þjónustu, búsetu, dagþjónustu og vinnu og hjá félaginu starfi um 450 manns í ríflega 300 stöðugildum.
Vistaskipti Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Sjá meira