Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar 16. ágúst 2026 09:30 Ég sat í vikunni mjög gott búnaðarþing hvar samþykkt var ályktun með meginþorra atkvæða þingfulltrúa um að við teljum hag bænda best borgið utan ESB. Þar á undan hlýddi ég á afar áhugavert málþing sem Bændasamtökin stóðu fyrir þar sem fluttu erindi fulltrúar bænda frá Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Allt mjög áhugaverð erindi, fagleg og raunsönn reynsla af því hvað felst í aðildarviðræðum sem og veru í ESB út frá norrænna bænda reynslu. Tveir punktar fannst mér sérstaklega áhugaverðir frá Ingrid Rydberg sem vinnur fyrir sænsku bændasamtökin LRF að hagsmunum sænskra bænda innan ESB. Hún sagði í sínu erindi að ef Íslendingar fari í aðildarviðræður við ESB og gangi svo í kjölfarið inn skipti máli að vera með viðveru í Brussel, það skipti nefnilega öllu upp á að ná málum í gegn að vera á staðnum, mynda tengsl við annað fólk og önnur ríki og mynda bandalög með eða á móti hinum og þessum málum. Semsagt sagði hún að það skipti máli að stunda beinharða hagsmunagæslu innan sambandsins sem kallast lobbýismi á útlensku en sumir kalla klíkuskap og spillingu þegar slíkt á sér stað á Íslandi. Mér fannst virkilega áhugavert að þarna var staðfest opinberlega, sem var svo sem alveg vitað nú þegar, að til að ná málum fram innan ESB skiptir ekki endilega mestu máli að vera með sæti við eitthvert þingmannaborð heldur að þekkja rétta fólkið til að ná sínum málum í gegn. ESB er reyndar ekkert feimið við að viðurkenna þessa staðreynd hefur mér sýnst en mér finnst þetta samt smávegis umhugsunarefni fyrir þá sem ætla að segja já og nota það sem rök að þannig sé hægt að losna við klíkuskap á Íslandi. Jújú það er kannski alveg hægt að losna við klíkuskap á Íslandi, hann færist bara til Brussel í staðinn. Hinn punkturinn sem mér fannst sérlega áhugaverður var að þeir kostir sem hún taldi upp sem að sænskir bændur hefðu hagnast á við inngöngu í ESB virðist mér vera þættir sem við íslenskir bændur höfum nú þegar í gegnum EES samninginn. Ég veit ekki af hverju Svíar fóru í ESB í staðinn fyrir EES, þekki ekki forsöguna að því enda ekki mikið farin að fylgjast með pólitík í kringum 10 ára aldurinn. Mér finnst þetta samt umhugsunarvert atriði. Frá finnska fulltrúanum Esa Härmäla fannst mér svo áhugavert að hann setti beint í sinn glærupakka að Íslendingar skyldu átta sig á að við séum að óska eftir inngöngu í ESB en ekki ESB í Ísland. Að lokum fannst mér virkilega áhugaverður punkturinn frá Norðmanninum Bjørn Gimming sem benti á það, sem mér finnst afar veigamikið atriði, að allar boðleiðir frá borgurum til stjórnvalda lengjast sé gengist undir aðild að ESB. Höfundur er bóndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun