Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar 19. ágúst 2026 07:15 Það er merkilegt hvað sumir eru sannfærðir um að íslenska krónan sé ómissandi þjóðargersemi. Að sveigjanleiki hennar, sem færir byrðar af efnahagsáföllum af útflutningsgreinum og yfir á launafólk, sé okkar helsti kostur sem þjóðar. Allt tal um upptöku evru jaðri við landráð. Það er líka merkilegt að þeir sem halda þessu skýrast fram, til dæmis í gegnum fjölmiðlana sína, hafa allt aðra skoðun þegar kemur að eigin rekstri. Þá er krónan allt í einu ekki alveg jafn heillandi. Þá er evran ekki lengur ógn við fullveldið. Þá er erlend fjármögnun ekki hættuleg tilraunastarfsemi. Þá er hún bara skynsamlegur rekstur. Sumir njóta evru, hinir mega það ekki Enginn fjölmiðill rekur harðari áróður gegn því að Íslendingar skoði aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru en Morgunblaðið. Þetta er ekki leyndarmál heldur yfirlýst stefna blaðsins og pólitískra málflutningsmanna sem þar starfa í forgrunni. Í blaðinu er málið gjarnan sett fram eins og það sé fráleit hugmynd að venjuleg íslensk heimili og fyrirtæki fái að losna úr íslenska vaxtakerfinu og því jafnvel haldið fram að vextir á Íslandi séu ekki háir og verðlag sé ekkert dýrt. Það sé bara skynvilla að halda það. Því sé það ábyrgðarleysi að spyrja hvort við getum fengið stöðugri gjaldmiðil, lægri vexti og betri kjör. Helsti eigandi Morgunblaðsins er fjölskyldan sem á stærstan hlut í og stýrir útgerðarrisanum Ísfélaginu. Í ársreikningi þess vegna ársins 2025 blasir við nokkur önnur mynd en sú sem teiknuð er upp í Morgunblaðinu á hverjum degi um þessar mundir. Ísfélagið er með langstærstan hluta sinna tekna í erlendum gjaldmiðlum. Það endurfjármagnaði skuldir sínar í evrum í byrjun árs í fyrra. Það notar til þess erlenda banka og nýtur þess að geta fjármagnað sig á kjörum sem venjuleg íslensk heimili og flest íslensk fyrirtæki komast ekki nálægt og geta ekki látið sig dreyma um. Með því að benda á þetta er ég ekki að gagnrýna rekstur Ísfélagsins. Þvert á móti. Það er fullkomlega eðlilegt og skynsamlegt að fyrirtæki sem hefur tekjur sínar í erlendum gjaldmiðlum reyni að fjármagna sig í sama gjaldmiðli. Það lækkar áhættu. Það lækkar vaxtakostnað. Það styrkir reksturinn. Af hverju á almenningur að sitja fastur? En þá vaknar eðlilega spurningin: Af hverju má ekki ræða hvort sama hugsun eigi að gilda fyrir þjóðarbúið? Af hverju eiga útvalin stórfyrirtæki að geta flúið íslensku krónuna þegar þeim hentar, en almenningur að sitja fastur í henni með 9 til 10 prósenta húsnæðisvexti? Af hverju er evran skynsamleg þegar hún lækkar fjármagnskostnað stórfyrirtækja en hættuleg þegar hún gæti lækkað afborganir heimila eða lítilla og meðalstórra fyrirtækja? Af hverju mega sumir nota evruna sér til gagns en venjulegt vinnandi fólk og smærri atvinnurekendur á Íslandi ekki? Í þessu felst gríðarleg mótsögn og í henni kjarnast einhverjar mikilvægustu pólitísku deilur á Íslandi: Fyrir hverja er þetta krónuhagkerfi eiginlega? Þeirri spurningu reyndi ég að svara hér fyrr í sumar. Þetta snýst um völd Þeir sem hafa aðgang að erlendum bönkum, erlendum fjármagnsmörkuðum og evrulánum lifa nú þegar að hluta til í öðrum veruleika en venjulegt vinnandi fólk á Íslandi. Þeir geta varið sig gegn krónunni. Þeir geta minnkað vaxtabyrðina. Þeir geta skipulagt rekstur sinn utan þess kerfis sem þeir segja okkur hinum, í gegnum fjölmiðla sem þeir niðurgreiða taprekstur á um mörg hundruð milljónir króna á ári, að sé ómissandi. Venjuleg heimili geta það ekki. Þau geta ekki hringt í fimm banka, þar af þrjá erlenda, og endurfjármagnað húsnæðislánið sitt í evrum. Þau borga bara svimandi háa íslenska vexti sem eru allt að þrisvar sinnum hærri en bjóðast í evru-löndum. Þau borga krónuálagið. Þau borga óstöðugleikann. Þess vegna er mikilvægt að skilja að umræðan um viðræður við Evrópusambandið og evru er ekki fræðileg, heldur snýst hún um völd og vilja fárra til að viðhalda þeim völdum. Hún snýst um hverjir fá að njóta stöðugleika og hverjir eiga að borga fyrir óstöðugleikann. Krónuhagkerfið festir þessi völd í sessi og frekari nálægð við Evrópusambandið ógnar þeim. Það er okkar sem erum þolendur þessa fyrirkomulags að rísa upp gegn því. Ef evran er nógu góð fyrir stórfyrirtækin þá eigum við að minnsta kosti að fá að skoða hvort hún sé nógu góð fyrir heimilin líka. Fyrsta skrefið í því er að segja Já 29. ágúst. Höfundur er framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og áhugamaður um betri kjör fyrir íslensk heimili og fyrirtæki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórður Snær Júlíusson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun