Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar 18. ágúst 2026 14:03 Margir gigtarsjúkdómar eru ósýnilegir. Þeir sjást ekki utan á fólki en geta valdið miklum verkjum, lamandi þreytu, heilaþoku og verulegri skerðingu á daglegu lífi. Í Reykjavíkurmaraþoninu hlaupa einstaklingar til stuðnings fólki sem lifir með þessum fjölbreyttu og oft krefjandi sjúkdómum. Fyrir fólk með ósýnilega sjúkdóma sem oft upplifir vantrú er þessi stuðningur sem hlauparar sýna í verki ótrúlega dýrmætur því hann gerir baráttuna sýnilega. Laugardaginn 22. ágúst fer Reykjavíkurmaraþonið fram. Þá munu þúsundir einstaklinga hlaupa og safna áheitum fyrir góð málefni. Meðal þeirra eru hlauparar sem hafa valið að styðja Gigtarfélag Íslands og fólkið sem félagið þjónustar. Sum hlaupa vegna eigin reynslu af gigt. Önnur hlaupa fyrir barn, foreldri, maka, vin eða aðra manneskju sem þeim þykir vænt um. Á bak við hvert áheit er saga og hvert skref ber með sér mikilvægan stuðning. Gigt sést ekki alltaf utan á fólki Þegar rætt er um gigt hugsa margir fyrst um verki í liðum. Gigtarsjúkdómar eru þó yfir hundrað talsins og geta haft víðtæk áhrif á líkamann og daglegt líf. Fólk getur glímt við stöðuga verki, lamandi þreytu, heilaþoku og önnur einkenni sem sjást ekki utan á því en hafa áhrif á nám, vinnu, fjölskyldulíf og félagslega þátttöku. Manneskja getur því litið vel út, brosað og tekið þátt í einstökum viðburði en samt verið mjög veik. Sum þurfa að hvíla sig lengi fyrir stutta samverustund. Önnur finna fyrir auknum verkjum eða örmögnun næstu daga. Betri dagur þýðir ekki að sjúkdómurinn sé horfinn. Fólk á að geta notið góðu daganna án þess að þurfa að óttast að veikindi þess verði dregin í efa. Þegar veikindi hafa áhrif á starfsgetu Langvinnir gigtarsjúkdómar geta haft mikil áhrif á starfsgetu. Sumir geta haldið áfram að vinna með viðeigandi stuðningi og aðlögun. Aðrir þurfa að minnka við sig vinnu og sumir missa starfsgetuna alveg. Að geta ekki unnið vegna veikinda er ekki frí. Fólk getur misst tekjur, daglega rútínu, vinnufélaga og mikilvægan hluta sjálfsmyndar sinnar. Tíminn fyllist ekki endilega af hvíld og ánægju heldur læknisheimsóknum, meðferðum, aukaverkunum og því að safna kröftum fyrir einföld verkefni. Í myndbandi sem ég sá nýlega var þessu lýst á mjög skýran hátt: „Ég hætti ekki að vinna vegna þess að mig langaði í hvíld. Ég hætti vegna þess að ég er veik. Ég myndi skipta þessum tíma fyrir heilsuna mína á einu augabragði.“ Þessi orð minna okkur á mikilvægi þess að mæta fólki af skilningi. Við sjáum sjaldnast alla söguna og vitum ekki hvað það hefur kostað manneskju að þurfa að minnka við sig vinnu eða hætta henni. Áheitin skapa raunverulegan stuðning Áheitin sem safnast fyrir Gigtarfélag Íslands hjálpa félaginu að veita fólki með gigtarsjúkdóma og aðstandendum þess fræðslu, ráðgjöf, hreyfiúrræði og félagslegan stuðning. Þessi þjónusta skiptir máli. Langvinnum veikindum getur fylgt óöryggi og félagsleg einangrun. Aðgangur að áreiðanlegum upplýsingum, ráðgjöf og samfélagi fólks með svipaða reynslu getur hjálpað einstaklingum að takast á við breyttar aðstæður og öðlast aukið öryggi. Hlaupararnir leggja sitt af mörkum með hverju skrefi. Þau minna okkur á að á bak við sjúkdómaheitin er fólk sem vill taka þátt í samfélaginu, sinna fjölskyldu sinni og lifa innihaldsríku lífi. Þegar hlauparar Reykjavíkurmaraþonsins leggja af stað skulum við hvetja þau áfram og þakka þeim fyrir að vekja athygli á góðum málefnum. Um leið skulum við muna að stuðningur felst ekki aðeins í áheitum. Hann felst líka í því að hlusta, sýna skilning og trúa fólki þegar það segir frá áhrifum veikinda sinna. Hvert skref og hvert áheit skiptir máli. Saman getum við stutt fólk með gigt til betri lífsgæða og aukinnar þátttöku í samfélaginu. Höfundur er Hrönn Stefánsdóttir, formaður Gigtarfélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun