Handbolti

Rekinn eftir óásættanleg sam­skipti við yngri leik­menn

Andri Broddason skrifar
Tobias Aagaard hefur verið rekinn sem þjálfari Nordsjælland í handbolta.
Tobias Aagaard hefur verið rekinn sem þjálfari Nordsjælland í handbolta. Anders Kamper/SjællandskeNyheder

Handboltalið Nordsjælland hefur rekið Tobias Aagaard sem þjálfara liðsins vegna óviðeigandi samskipta við yngri leikmenn liðsins.

Í dag sendi handboltalið Nordsjælland frá sér yfirlýsingu þar sem félagið tilkynnir að Tobias Aagaard verði ekki lengur þjálfari liðsins. Stjórn félagsins var upplýst fyrir nokkrum dögum um samskipti Aagaard við yngri leikmenn félagsins sem voru ekki við hæfi þjálfara og skorti alla ábyrgð.

„Hjá Nordsjælland eiga þjálfarar okkar að vera bæði fyrirmyndir og traustir aðilar. Þetta á sérstaklega við starf í kringum yngri leikmenn félagsins. Að okkar mati var ekki staðið undir þessari ábyrgð og þess vegna mun samstarf okkar við Tobias Aagard taka endi,“ sagði Kim Scheuer Nielsen í stjórn handboltafélags Nordsjælland.

Félagið ætlar að skoða aðgerðir þjálfara svo atburðir líkir þessum gerist ekki aftur. Félagið er sem stendur í fullri vinnu við að leita að öðrum þjálfara en þangað til mun Nicolaj Jensen, aðstoðarþjálfari félagsins, starfa sem aðalþjálfari.

Áður en Tobias Aagaard var aðalþjálfari hjá Nordsjælland var hann þjálfari yngri flokka félagsins. Hann vann sig einfaldlega upp í starfið hjá aðalliðinu.

Nordsjælland gekk ekki vel á síðasta tímabili í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta en liðið endaði einu sæti frá umspilssæti um fall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×