Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir skrifar 20. ágúst 2026 07:32 Ég þarf að deila upplifun minni af bráðamóttökunni í Fossvogi síðustu tvo sólarhringa, því ég á mjög erfitt með að sætta mig við að þetta sé það sem við teljum ásættanlega heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Ég fór á bráðamóttökuna í Fossvogi í gærkvöldi kl. 23:30. Ég fór í blóðprufu og hefðbundnar mælingar, síðan skoðaði almennur læknir mig og svo fór ég í ómskoðun. Hver þessara samskipta tók í mesta lagi 5–7 mínútur. Á milli þeirra beið ég. Og beið Og beið Klukkan var orðin 05:30 þegar mér var loksins vísað heim. Á þessum tíma var ekki um neinn þægilegan eða eðlilegan biðstað að ræða. Valkostirnir voru grjótharðir bekkir í biðstofunni eða brakandi stóll úti í horni inni á deildinni – umkringd rúmum þar sem sjúklingar lágu í göngunum og reyndu að sofa. Stingandi björt lýsingin sést líklega úr geimnum. Fólk var veikt, þreytt og í verkjum. Þetta er bráðamóttakan í Fossvogi. Stærsta bráðamóttaka landsins, sem sinnir að meðaltali um 200 sjúklingum á dag. Ég fór heim um morguninn, aðeins til að vakna aftur kl. 09:00 og fara í sneiðmyndatöku. Skárri kostur sem ég valdi sjálf þar sem hinn var að reyna að hvílast til 08:00 á hörðum biðstofubekkjunum. Ég mætti nokkrum mínútum fyrir kl. 10:00. Hefðbundnar mælingar. Blóðprufa kl. 12:00 og sneiðmynd kl. 12:40. Og svo beið ég aftur. Ég fékk loksins svör kl. 14:40. Þá var dagurinn nánast liðinn og ég þurfti að drífa mig heim til að ná í dætur mínar í leikskólannn – varla nægur tími á milli til að stoppa í búð á leiðinni. Ég vil taka það sérstaklega fram að starfsfólkið á gólfinu á alla mína virðingu. Læknar, hjúkrunarfræðingar og annað starfsfólk eru að reyna að halda þessu kerfi gangandi við aðstæður sem virðast oft algjörlega óboðlegar. Þau eru ekki vandamálið. Þau eru fólkið sem er að glíma við vandamálið á hverjum degi. Og árið 2025 varð æ erfiðara að halda því fram að þetta sé bara einstök slæm nótt eða óheppileg upplifun eins sjúklings. Í febrúar 2025 var tilkynnt að varnartengdur stuðningur Íslands við Úkraínu yrði aukinn úr 1,5 milljörðum í 3,6 milljarða króna á árinu. Á sama tíma var verið að undirbúa stækkun bráðamóttökunnar í Fossvogi vegna þess að núverandi húsnæði var einfaldlega of lítið fyrir þá þjónustu sem þar þarf að veita. Ráðgert var að bæta við um 700 fermetra húsnæði og 20 rúmum. Og í desember 2025 náði ástandið þeim punkti að níu sjúklingar voru vistaðir í bílageymslu við bráðamóttökuna vegna þess að deildin var yfirfull. Framkvæmdastjóri Landspítala sagði þá að slíkt væri óásættanlegt og að daglega væri verið að glíma við brot á reglum um meðal annars sóttvarnir, persónuvernd og brunavarnir. Þetta er ekki eðlilegt heilbrigðiskerfi. Þetta er kerfi sem er að kikna undan eigin álagi. Og það sem mér finnst sérstaklega sláandi er að þetta vandamál er ekki nýtt. Ríkisendurskoðun benti á árið 2025 að flæðivandi Landspítalans birtist hvað skýrast á bráðamóttökunni í Fossvogi. Gögnin sem úttektin byggði á sýndu meðal annars að árið 2024 var rúmanýting þar 154%, að meðaltali 29 sjúklingar biðu þar eftir innlögn á legudeild og að aðeins 23% þeirra sem þurftu innlögn komust þangað innan sex klukkustunda. Þetta er kerfisvandi. Ekki vandamál starfsfólksins. Ekki vandamál sjúklinganna. Og þá þarf að spyrja: Hvar er forgangsröðun stjórnvalda? Ég er ekki að segja að við eigum ekki að hjálpa fólki í stríði. Ég er ekki að segja að Ísland eigi ekki að standa með Úkraínu. Ég er að segja að við verðum að geta gert bæði. Við verðum að geta staðið með fólki erlendis og staðið með fólkinu sem býr hér. Við verðum að geta fjármagnað alþjóðlegar skuldbindingar og tryggt að veikt fólk þurfi ekki að eyða nótt á hörðum bekkjum eða í stól á gangi undir köldum flúrljósum. Við verðum að geta borgað fyrir hjálp úti í heimi og skapað mannsæmandi aðstæður fyrir þá sem leita sér hjálpar heima. Þetta er ekki spurning um að velja á milli góðra málefna. Þetta er spurning um forgangsröðun. Ísland er eitt ríkasta land heims. Við eigum frábært heilbrigðisstarfsfólk. Við eigum fólk sem mætir í vinnuna dag eftir dag og reynir að gera kraftaverk með þau úrræði sem því eru gefin. Okkur skortir ekki hæft fólk. Okkur skortir kerfi sem styður fólkið okkar. Þegar sjúklingar liggja á göngum, starfsfólk vinnur við stöðugt álag og sjúklingar þurfa að bíða klukkutímum saman eftir þjónustu sem tekur sjálf örfáar mínútur, þá er ekki lengur hægt að segja að þetta sé bara „erfið staða“. Það er búið að koma heilbrigðiskerfinu í þessa stöðu. Og við eigum að krefjast breytinga. Þetta á ekki að vera eðlilegt. Þetta á ekki að vera ásættanlegt og þetta á ekki að vera það besta sem við getum boðið upp á. Það hlýtur að vera til betri leið til að reka heilbrigðiskerfið okkar. Höfundur er verkefnastjóri Rekstrarsviðs Íslandshótela. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun