Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar 21. ágúst 2026 19:00 Umræðan um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi hefur farið útum þúfur síðastliðnar vikur og mánuði. Þjóðfélagsumræðan, með tilkomu samfélagsmiðla og kommentakerfa, hefur orðið óbeislaðri þar sem mannlegi þátturinn við samskipti hefur verið tekinn úr sambandi. Í námi mínu í menntunarfræði var okkur kennt að orðin sem við segjum vegi aðeins um 30% af samskiptum, jafnvel minna. Restin er það hvernig raddblæ við notum, líkamstjáningu og svo það umhverfi sem samtalið á sér stað í. Þessir þættir ættu að virka sem nokkurs konar ventill á það hvað við leyfum okkur að segja ásamt því að samhygð myndast þegar fólk nær mannlegri tengingu. Ég hef staðið sjálfan mig að því að dansa á línunni varðandi það hvað telst við hæfi í netsamskiptum. Það er svo langt frá minni persónu dags daglega þegar ég er á meðal fólks og finn ég að ég er miklu umburðarlyndari fyrir skoðunum og vilja annarra þar. Ég hef samt aldrei verið orðljótur eða rakkað fólk niður fyrir skoðanir sínar á netinu, til þess var ég einfaldlega of vel upp alinn(takk mamma og pabbi). Málið er að við höfum hreinlega enga leið til að vita hvernig aðilinn sem þú ert að eiga í samskiptum við bregst við og skilur það sem þú skrifaðir. Við eðlilegar aðstæður hefðirðu mögulega áttað þig á því með því að sjá líkamstjáningu hans og heyra það í raddblænum að viðkomandi misskildi þig eða að þú komst þessu ekki nógu skýrt frá þér. Þá og þar gæfist þér tækifæri að leiðrétta þann misskilning, tækifæri sem alls ekki gefst í netsamskiptum því svarið þitt barst kannski þegar viðkomandi var farinn að sinna einhverju allt öðru. Í þessu umhverfi sem ég er að lýsa hafa svo allskyns ósannindi, útúrsnúningar og hálfsannleikur fengið að grassera líkt og aldrei fyrr. Þannig umhverfi er ekki líklegt til þess að hjálpa okkur sem þjóð til að komast að því sem þjóðaratkvæðagreiðslum er ætlað að leiða í ljós. Raunverulegan vilja þjóðarinnar út frá því málefni sem liggur fyrir. Markmiðið með þjóðaratkvæðagreiðslu er nefnilega ekki að vinna keppnina í að ná að lokka sem flesta til að kjósa samkvæmt þinni sannfæringu, sama hvað það kostar. Það mun bara koma í bakið á þér síðar. Þjóðin er nefnilega ekki einsleit. Það eru ekki allir með sömu þarfir, hagsmuni eða langanir. Þjóðin þarf að fá að ákveða hvað henni sem heild er fyrir bestu og til að hægt sé að taka þá ákvörðun þarf þjóðin að fá réttar upplýsingar um það málefni sem kjósa á um í það skiptið. Annað væri svik við þjóðina, afvegaleiðing með einungis hag sumra í huga en ekki þjóðarinnar sem heild. Þjóðin þarf því frið frá öfgum og klækjabrögðum á meðan hún gerir upp hug sinn. Ég vil því hvetja alla sem taka þátt í umræðunni þessa síðustu daga fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna að vanda sig þegar kemur að því að setja fram fullyrðingar og rök. Hafa í huga hvert sjónarhorn þess sem þú ert að ræða við er og sýna þeirra skoðunum skilning. Hagsmunir viðkomandi eru kannski ekki þeir sömu og þínir en það ætti samt að vera hægt að komast að því hvað myndi henta þjóðinni sem heild í sameiningu með upplýstri og faglegri umræðu. Þeir sem standa í sviðsljósi fjölmiðla og eru í forsvari fyrir JÁ og NEI hreyfingarnar verða að líta á sig sem fyrirmyndir í umræðunni. Eftir höfðinu dansa limirnir. Við þurfum að spyrja okkur: “Viljum við ná fram raunverulegum vilja þjóðarinnar eða afbakaðri mynd sem ræðst af færni ræðumanna, fjármagni sem fer í villandi auglýsingar eða hagsmunum einstaklinga sem standa á bakvið tjöldin og reyna að stýra umræðunni?” Ég ætla að kjósa í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu og ég hvet þig til að gera slíkt hið sama… út frá þinni sannfæringu með hagsmuni þína og þinna nánustu í huga. Ég vona bara að þú fáir sem mest af sannleika og réttum upplýsingum til að byggja svar þitt á. Höfundur er fjölskyldufaðir, kennari, knattspyrnudómari og ferðamála- og viðskiptafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar