Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. ágúst 2026 10:21 Eftir að bíllinn bilaði þremur dögum eftir kaup var hann á verkstæði í um tvo mánuði og bilaði síðan aftur daginn eftir með sama hætti og var aftur dreginn á verkstæði. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa féllst á kröfu bílakaupanda um riftun á kaupum á bílnum vegna bilana á bílnum sem komu upp þremur dögum eftir kaup. Kaupandi krafðist fullrar endurgreiðslu kaupverðs og alls útlagðs kostnaðar vegna viðgerða auk riftunar kaupanna. Seljandi taldi sig ekki ábyrgan fyrir bilunum sem fram komu eftir kaupin.
Fram kemur í úrskurði nefndarinnar að þann 25. september árið 2025 hafi þeim borist kvörtun þess efnis. Samkvæmt gögnum málsins hafi kaupandi fest kaup á bílnum af árgerðinni 2019 og greitt fyrir hann tæpar 2,3 milljónir í maí 2025. Að sögn kaupenda bilaði bíllinn þremur dögum eftir kaup og fór ekki í gang. Úrskurðurinn var kveðinn upp þann 6. júlí síðastliðinn. Eftir að hafa fengið bifvélavirkja til aðstoðar þremur dögum síðar var honum tjáð að bifreiðin gæti drepið á sér aftur hvenær sem er. Daginn eftir hafi bíllinn aftur drepið á sér skömmu eftir að lagt var af stað á verkstæði og var hann í kjölfarið dreginn þangað. Þá var bíllinn á verkstæði í um tvo mánuði en bilaði aftur degi seinna með sama hætti og var þá dreginn aftur á verkstæði. Viðgerð hafi leitt í ljós að átt hefði verið við víra í rafmagnsbúnaði bílsins og að líklega myndi hann bila aftur vegna þessa. Eins og fyrr sagði krafðist kaupandi riftunar á kaupunum og fullrar endurgreiðslu á kaupverði sem og á útlögðum viðgerðarkostnaði að upphæð tæpra 150 þúsund króna. Hann hafi haldið því fram að bifreiðin væri haldin verulegum galla sem réttlætti riftun. Gallinn hafi verið þess eðlis að hann hafi ekki komið í ljós við hefðbundna ástandsskoðun. Taldi seljanda vita af biluninni við sölu bílsins Kaupandi hafi bent á að seljandi hafi verið raunverulegur eigandi bílsins um langa hríð og því sé ólíklegt að hann hafi ekki vitað af biluninni. Seljandi hafi alfarið hafnað kröfum kaupenda. Hann hafi haldið því fram að bíllinn hafi verið í góðu ásigkomulagi við sölu hans og hafi staðist bæði ástandsskoðun hjá bifvélavirkja og lögbundna skoðun þremur vikum fyrir sölu. Hann hafi sjálfur ekki haft neina vitneskju um bilunina og hafi upplýst kaupanda um að hann mætti láta skoða bifreiðina fyrir kaup. Það að bilunin hafi verið flókin og erfitt hafi verið að greina hana styðji að hann hafi ekki haft vitneskju um hana. Hann hafi ekki talið sig ábyrgan fyrir bilunum sem fram komu eftir kaupin. Samkvæmt 32. grein laga um neytendakaup getur kaupandi rift kaupum í stað þess að krefjast afsláttar. Í úrskurði nefndarinnar segir þó að riftun sé afdrifaríkt úrræði sem sé aðeins beitt þegar skilyrði hennar eru uppfyllt en þau séu að galli sé verulegur. Gripið hafi verið til bráðabrigðarlausnar í stað fullnægjandi viðgerðar Í niðurstöðu nefndarinnar segir að fyrir liggi bilanagreining þar sem kemur meðal annars fram að vír hafi verið vafinn utan um öryggi til að tryggja leiðni. Samkvæmt greiningunni bendir þetta til þess að gripið hafi verið til bráðabirgðalausnar í stað fullnægjandi viðgerðar og er jafnframt tekið fram að slíkt geti verið hættulegt. Að mati kærunefndarinnar mátti kaupandi vænta þess að grunnkerfi bifreiðarinnar, svo sem rafkerfi hennar, væru í eðlilegu og öruggu ástandi og að ekki hefði verið átt við þau með þeim hætti sem lýst er í bilanagreiningunni enda hafi bilunin ekki komið fram við hefðbundna skoðun. „Í þessu tilviki er um að ræða galla sem gerir bifreiðina ónothæfa eða óáreiðanlega,“ segir í niðurstöðu nefndarinnar og ljóst sé að bilunin sé veruleg í samræmi við 32. grein laga um neytendakaup. Því var fallist á kröfu kaupandans um riftun kaupanna gegn skilum á bílnum og seljanda gert að endurgreiða honum fyrir bílinn sem og útlagðan viðgerðarkostnað, samtals tæpar tvær og hálfa milljón.
Úrskurðar- og kærunefndir Bílar Neytendur Mest lesið Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Atvinnulíf Lækka verð á þúsund vörum Neytendur Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Samstarf Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Framúrskarandi fyrirtæki Loka Krambúðinni á Húsavík Viðskipti innlent Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Neytendur Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Neytendur Breskur fjárfestir leitar á náðir ríkisins vegna sæstrengs til Íslands Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Fleiri fréttir Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Sjá meira
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf