Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Aron Guðmundsson skrifar 24. ágúst 2026 11:32 De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, niðurlútur á hliðarlínunni í erfiðum leik liðsins gegn Brentford um helgina. Vísir/Getty Vandræði Tottenham í ensku úrvalsdeildinni halda áfram. Eftir erfitt síðasta tímabil ríkti bjartsýni hjá stuðningsmönnum liðsins eftir leikmannakomur sumarsins en þeim var kippt niður á jörðina strax í fyrstu umferð. Farið var yfir stöðu mála hjá liðinu í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport í gær. „
Það er búið að kvarta undan því í gegnum tíðina að Tottenham hafi ekki verið að eyða peningum á leikmannamarkaðnum. Nú er búið að eyða og þetta er enn þá bara sama gamla Tottenham,“ sagði Bjarni Guðjónsson, sérfræðingur Sunnudagsmessunnar. Klippa: Sama gamla Tottenham Engu hefur verið til sparað þegar að kemur að leikmannakaupum hjá Tottenham fyrir tímabilið og fúlgum fjár verið varið í leikmenn á borð við Sandro Tonali, Mateus Fernandes og Jan Paul van Hecke. Ekki á að endurtaka vonbrigða tímabilið frá því síðast þegar Tottenham rétt slapp við fall en 3-0 tap gegn Brentford í fyrstu umferð sló á gleði stuðningsmanna liðsins eftir leikmannakaup sumarsins. Orðrómar um frekari leikmannakomur eru svo uppi. „Þeir sem voru upp í stúku hjá liðinu í þessum leik gegn Brentford. Þú ert með Micky van de Ven, Pedro Porro, Kulusevski, Sarr, Xavi Simons og það er verið að reyna fá Cody Gakpo til liðs við félagið, Savinho, bara komið með þetta allt saman. Hann ber sig ágætlega, blessaður De Zerbi, en ég myndi ekki sofa á nóttunni með alla þessa gæja á bakinu,“ bætti Kjartan Henry Finnbogason, annar sérfræðingur Sunnudagsmessunnar við. Umræðuna um Tottenham úr Sunnudagsmessunni má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Messan Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira