Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kristján Már Unnarsson skrifar 24. ágúst 2026 22:42 Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, gulrótabóndi í Þistilfirði Egill Aðalsteinsson Fullyrt er að stærsta lífræna gulrótaakur landsins sé að finna norðan undir Langanesi. Akurinn er á jörðinni Óslandi í Þistilfirði skammt frá ósi hinnar kunnu laxveiðiár Sandár.
Í kvöldfréttum Sýnar var sent út beint frá gulrótaakrinum og rætt við garðyrkjubóndann Ólínu Ingibjörgu Jóhannesdóttur, sem búsett er á bænum Brúarlandi 2 við bakka Hafralónsár skammt utan Þórshafnar. „Jú. Þetta er stærsti lífræni gulrótaakur landsins. Hann er 1,67 hektarar,“ segir Ólína. Horft yfir gulrótaakurinn.Egill Aðalsteinsson Í fyrra fékk hún metuppskeru af akrinum, 83 tonn. Hún býst þó við að magnið verði minna í ár, kannski milli 50 og 60 tonn. Í sjónvarpsfréttinni kíkti hún undir grösin og taldi það sem hún sá líta vel út. Gulræturnar eiga þó enn eftir að vaxa talsvert í moldinni en hún gerir ráð fyrir að þær verði teknar upp á tímabilinu frá 10. til 15. september. Hveiti er ræktað þegar gulræturnar eru hvíldar.Egill Aðalsteinsson Enginn tilbúinn áburður er notaður heldur sérframleiddur áburður frá Ísfélaginu á Þórshöfn, sem er loðnumjöl. Þá eru engin eiturefni notuð heldur var allur arfi handtíndur, sem kallaði á mikinn mannskap í sumar. Séð yfir akurinn og norður til Þistilfjarðar. Sandá liðast til sjávar hægra megin.Egill Aðalsteinsson Við hliðina sáum við hveitiakur. Hann er liður í skiptirækt en hver grænmetisakur er aðeins notaður þriðja hvert ár en þess á milli sáð í hann hveiti. Það er þó ekki skorið upp heldur látið falla og unnið oní jarðveginn með mjölinu, eins og Ólína lýsir hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Garðyrkja Landbúnaður Langanesbyggð Matvælaframleiðsla Ísfélagið Matur Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira