Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar 25. ágúst 2026 09:42 Í myndbandi sem Viðreisn sendi frá sér fyrir stuttu kom formaður utanríkismálanefndar fram til að tala um fullveldið, þessi aðili sem helst hefur gert garðinn frægan í sumar fyrir fráleit myndbönd þar sem hann hélt því fram að vöruverð myndi hér lækka eins og fyrir töfra um 25% - sem jafnvel hörðustu sambandssinnar viðurkenna að er fráleit fullyrðing. En víkjum að þessu blessaða myndbandi sem er sett fram í nafni Viðreisnar og því væntanlega stimplað og samþykkt af flokknum. Þar heldur þessi þingmaður því fram að Ísland muni ekki missa dropa af fullveldi við inngöngu inn í sambandið. Hér hlýtur maðurinn að vera að tala gegn betri vitund. Það er alveg öruggt að við munum gefa eftir töluverðu af fullveldi okkar við inngöngu, reyndar svo miklu að það verður að breyta stjórnarskrá til að heimila þetta fullveldisframsal. Þetta myndband verður sérstaklega alvarlegt í ljósi þess að það er sett fram í nafni Viðreisnar en ekki bara á hans persónulegu síðu. Við eigum rétt á því að stjórnmálaflokkar fari ekki fram með svona alvarlega misfærslur í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Það mætti kannski minna þingmanninn sem hefur farið frjálslega með staðreyndir í sumar á siðareglur alþingis, en í 5. grein þeirra er meðal annars talað um að þingmenn skuli sem þjóðkjörnir fulltrúar rækja störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika, að stilla málinu upp eins og hann hefur gert með því að segja ósatt er ekki í takt við þessar reglur, sem honum ber að virða. Hann er því miður ekki eini þingmaðurinn eða kjörni fulltrúinn sem hefur reynt að teygja sannleikann. Bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa í viðtölum haldið því fram að Ísland sé nú þegar 75% í ESB. Þetta er auðvitað rangt og það vita þær líka, þegar þessi tala er nefnd er verið að vísa í innri markað ESB, það sem EES samningurinn snertir á. Þegar heildarregluverk ESB er hins vegar borið saman við það regluverk sem Ísland hefur tekið upp í gegnum EES hefur hlutfallið mælst mun lægra. Í úttekt utanríkisráðuneytisins sem náði til ársloka 2016 var það 13,4%, og jafnvel þótt gert sé ráð fyrir að hlutfallið hafi hækkað síðan þá er nær að tala um innan við 20% en 75% af heildarregluverkinu. Það eru gífurlega stór mál sem standa eftir sem við höfum ekki tekið upp, á borð við landbúnaðar og sjávarútvegsmál, tollabandalagið, viðskiptastefna, utanríkis og öryggisstefnu og svo mætti lengi telja. Sú fullyrðing að Ísland sé þegar 75% inni í ESB er því í besta falli mjög villandi. Við munum því miður þurfa að gefa eftir fullveldi okkar í þó nokkrum málaflokkum hvað sem þingmaðurinn heldur fram. Við göngumst inn í tollabandalagi ESB sem þýðir að það er ESB sem setur tollana. Við göngumst undir vald ESB þegar kemur að myndun alþjóðlegra viðskiptasamninga, við missum alla núgildandi fríverslunarsamninga eins og t.d. við Kína, aðild okkar að EFTA og EES og tökum þess í stað upp þá samninga sem ESB gerir og munum ekki geta gert nýja samninga þar sem ESB fer með valdið í þeim efnum. Hér er ágætt að hafa í huga að þarna munu hagsmunir stærri ríkjanna ráða miklu um hvernig samningarnir verða og við hverja. ESB mun svo hafa áhrif á skattamál, sjávarútvegs og landbúnaðarmál og svona mætti lengi telja. Við inngöngu í ESB er verið að gefa eftir fullveldi á öllum þrem sviðum ríkisvaldsins; löggjafarvalds, framkvæmdavalds og dómsvalds og það er ekki lítil ákvörðun og óboðlegt að sjá þingmenn og flokka reyna að gera lítið úr því að veita yfirþjóðlegu sambandi slík völd yfir lífi okkar. Þetta hefur í för með sér að mikið af regluverki sem sett er í ESB tekur gildi samstundis hér á landi og við getum ekkert gert við því , þegar það hefur farið í gegn um ferlið í ESB þá verðum við að segja já takk og taka því sem þau rétta að okkur. Jafnvel Þorgerður Katrín hefur viðurkennt í ræðu á Alþingi að við inngöngu í ESB gefi þjóðir eftir fullveldi. Það kann að vera að fólki sé alveg sama hvort að aðilar úti í Evrópu geti sett lög hér á íslandi, eða að Evrópudómstóllinn verði æðsta dómsvald hér á landi þegar kemur að ESB reglum, ég vona þó að fólk velti afleiðingum þess alvarlega fyrir sér áður en það lítur til þess með léttvægum augum. Ákvörðunin um að gangast undir erlent vald er alvarleg og ekki svo auðvelt að snúa til baka af þeirri braut. Eitt af því sem sambandsinnar segja til að láta fólki líða eins og þetta skipti litlu máli er að við getum alltaf gengið aftur úr ESB þegar við sjáum hversu slæmt það er. En hvað myndi það þýða fyrir Ísland? Jú, það þýðir að við göngum þaðan út án allra viðskiptasamninga sem við höfum í dag. Engan fríverslunarsamning við Kína, ekkert EFTA og ekkert EES og ekkert sem segir að við getum fengið það á nýjan leik. Það er því ekki raunsætt að segja það lítið mál að ganga úr ESB ef við á annað borð verðum blekkt þangað inn. Við myndum þurfa að semja upp á nýtt um aðgang að þeim samningum sem við myndum vilja fá, og ekkert sem segir að við fengjum þann aðgang. Að afhenda erlendu valdi lagasetningarvald, dómsvald og framkvæmdavald hér á landi er skref sem ætti að hræða fólk. Áhrif okkar úti eru sem næst engin umfram það sem við höfum nú þegar í dag. Að fara úr því að ráða 100% yfir örlögum okkar yfir í það að fá innan við 0,09% atkvæðavægi í ráðherraráði í ákveðnum málum og sex þingmenn á Evrópuþinginu, eða innan við 0,9% þingmanna miðað við núverandi stærð þingsins ætti að hringja viðvörunarbjöllum hjá öllum. Þó að Samfylking og Viðreisn treysti sér ekki til að gera það sem þarf til að byggja upp gott land er ekki ástæða til að gefast upp og láta ESB ráða för. Höldum áfram í fullveldi okkar. Tryggjum áfram að íslenskir kjósendur ráði hér fremur en Evrópskir embættismenn. Segjum nei þann 29. ágúst. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun