Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Kristján Már Unnarsson skrifar 25. ágúst 2026 23:23 Jóhann Hafberg Jónasson, oddviti Langanesbyggðar, í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar. Egill Aðalsteinsson Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur ákveðið kanna hug íbúa til áforma um gerð vindmyllugarða í sveitarfélaginu og iðnaðarsvæðis við Finnafjörð í tengslum við gerð stórskipahafnar. Málið þykir heitt meðal íbúa en oddvitinn segir niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við framhald málsins.
Í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar frá Þórshöfn var rætt við Jóhann Hafberg Jónasson, oddvita Langanesbyggðar, en um aldarfjórðungur er frá því málið komst fyrst á dagskrá í opinberri umræðu. Það var árið 2005, fyrir 21 ári, sem stórskipahöfn í Gunnólfsvík fór inn á aðalskipulag Skeggjastaðahrepps. Þau áform áttu síðan eftir að stækka og breytast og teikningar voru gerðar að sannkallaðri risahöfn í Finnafirði ásamt iðnaðarsvæði. Svona var höfnin í Finnafirði teiknuð.Grafík/Efla. Talað var um umskipunarhöfn vegna siglinga um norðurheimskautið en einnig höfn vegna olíu- og gasvinnslu á Drekasvæðinu. Árið 2013 kom eitt stærsta hafnafyrirtæki Evrópu, þýska félagið Bremenports, inn í verkefnið og fjármagnaði það undirbúningsrannsóknir í Finnafirði. Þórshöfn á Langanesi 11. apríl 2019. Fulltrúar Langanesbyggðar, Vopnafjarðarhrepps, þýska hafnarfélagsins Bremenports og verkfræðistofunnar Eflu undirrituðu þá samning um stofnun þróunarfélags um uppbyggingu alþjóðlegrar stórskipahafnar í Finnafirði.Efla Árið 2019 var undirritaður samstarfssamningur milli Langanesbyggðar, Vopnafjarðarhrepps, Bremenports og Verkfræðistofunnar Eflu um þróun og uppbyggingu hafnarstarfsemi í Finnafirði. Núna gengur viðskiptahugmyndin út á það að reisa vindorkuver ofan Þórshafnar. Raforkan yrði nýtt í Finnafirði til að framleiða rafeldsneyti fyrir skip og flugvélar. Fiskeldisstöð yrði hliðarverkefni. Grafísk mynd af tveimur vindmyllum sem áformað er koma upp í tilraunaskyni á Sauðaneshálsi ofan Þórshafnar.wpd Ísland Fulltrúar Bremenports komu til landsins í lok marsmánaðar síðastliðinn og héldu þá íbúafund á Þórshöfn um verkefnið. Ennfremur funduðu þeir með fulltrúum forsætisráðuneytis. Þeir sögðu þá í viðtali á Sýn að þeir teldu Finnafjarðarverkefnið rýma vel við áherslur íslenskra stjórnvalda. Ný sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur núna ákveðið að láta gera skoðanakönnun meðal íbúa til að kanna hug þeirra til málsins. Hér má heyra viðtalið við oddvitann í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Langanesbyggð Skipaflutningar Vindorka Vopnafjörður Byggðamál Orkumál Orkuskipti Rafmagn Loftslagsmál Umhverfismál Tengdar fréttir Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Fulltrúar þýska félagsins Bremenports eru enn áhugasamir um uppbyggingu alþjóðahafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes og segja aðstæður þar ákjósanlegar. Þetta kom fram á íbúafundi á Þórshöfn í síðustu viku en Þjóðverjarnir nýttu einnig Íslandsheimsóknina til að funda með fulltrúum forsætisráðuneytis. 7. apríl 2026 21:21 Segir Finnafjörð fastan í þagnarmúr ríkisstjórnar Framgangur hugmynda um stórskipahöfn í Finnafirði við Langanes tafðist vegna covid-faraldursins. Áform um að taka upp þráðinn á ný eru sögð stranda á því að engin áheyrn fáist hjá íslenska ríkinu. 10. apríl 2023 09:39 Áform um stóra vindmyllugarða milli Langaness og Vopnafjarðar Sveitarstjórn Langanesbyggðar skoðar nú hugmyndir um að reisa hátt í þrjúhundruð vindmyllur á sex svæðum milli Langaness og Vopnafjarðar. Rætt er um að allt að eitt þúsund megavött raforku verði virkjuð í vindmyllugörðunum. 20. júlí 2021 23:03 Norðausturhornið ráði við að vaxa með Finnafjarðarhöfn Stórskipahöfn í Finnafirði myndi hafa gríðarleg áhrif á norðausturhorni landsins en er jafnframt ávísun á átök, jafnt heima í héraði sem og í landsmálaumræðunni. 12. apríl 2019 23:30 Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira
Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Fulltrúar þýska félagsins Bremenports eru enn áhugasamir um uppbyggingu alþjóðahafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes og segja aðstæður þar ákjósanlegar. Þetta kom fram á íbúafundi á Þórshöfn í síðustu viku en Þjóðverjarnir nýttu einnig Íslandsheimsóknina til að funda með fulltrúum forsætisráðuneytis. 7. apríl 2026 21:21
Segir Finnafjörð fastan í þagnarmúr ríkisstjórnar Framgangur hugmynda um stórskipahöfn í Finnafirði við Langanes tafðist vegna covid-faraldursins. Áform um að taka upp þráðinn á ný eru sögð stranda á því að engin áheyrn fáist hjá íslenska ríkinu. 10. apríl 2023 09:39
Áform um stóra vindmyllugarða milli Langaness og Vopnafjarðar Sveitarstjórn Langanesbyggðar skoðar nú hugmyndir um að reisa hátt í þrjúhundruð vindmyllur á sex svæðum milli Langaness og Vopnafjarðar. Rætt er um að allt að eitt þúsund megavött raforku verði virkjuð í vindmyllugörðunum. 20. júlí 2021 23:03
Norðausturhornið ráði við að vaxa með Finnafjarðarhöfn Stórskipahöfn í Finnafirði myndi hafa gríðarleg áhrif á norðausturhorni landsins en er jafnframt ávísun á átök, jafnt heima í héraði sem og í landsmálaumræðunni. 12. apríl 2019 23:30