Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar 26. ágúst 2026 10:52 Viðbrögð og vangaveltur vegna rannsóknar og umfjöllunar um einelti þar sem konur voru meintir gerendur Það hefur verið einkar áhugavert að fylgjast með umfjöllun fjölmiðla um meistararitgerð Kristínar Helgu Magnúsdóttur sem nýverið útskrifaðist úr heilbrigðisvísindum, með áherslu á sálræn áföll og ofbeldi, frá Háskólanum á Akureyri. Ég fagna því að rannsókn á einelti og áhrifum eineltis fái jafn viðamikla umfjöllun, enda mikilvægt viðfangsefni sem ég tel hafa fengið of litla athygli á íslenskum vinnumarkaði. Fyrir áhugasama lesendur, þá má lesa ritgerðina hér. Í henni er að finna góða og heildstæða fræðilega umfjöllun um hugtakið einelti, bæði tíðni, birtingamyndir, afleiðingar og ýmislegt fleira áhugavert, með vísan í helstu rannsóknir og þekkingu dagsins í dag. Meginmarkmið rannsóknarinnar er að greina nánar birtingarmyndir eineltis af hendi kvenkyns gerenda á vinnustöðum, auk þess að skoða nánar líkamlegar og sálrænar afleiðingar hjá þolendum eineltis. Þá rannsóknarspurningu tel ég mjög áhugaverða og mikilvæga þar sem oft er munur á samskiptaháttum kynja, af ýmsum ástæðum sem verður ekki farið nánar í hér. Það yrði of langt mál að fara djúpt í niðurstöðurnar, og vísa ég því aftur í ritgerðina, þó vil ég fá að minnast á nokkur atriði. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að sú framkoma og hegðun gerenda sem þolendur vísa helst í, sé framkoma sem felst í óbeinum samskiptum, s.s. félagslegri útilokun, niðurlægingu og gaslýsingu. Ályktar Kristín Helga að einelti af hálfu kvenna birtist því frekar í óbeinum samskiptaháttum fremur en í árásahegðun og beinum samskiptum. Má leiða líkur að því að fólk átti sig seinna á slíkum samskiptaháttum. Því má álykta af niðurstöðunum að birtingamyndir eineltis af hálfu kvenna séu oft duldari og því erfiðara um vik að greina, meta og stöðva hegðunina af hálfu þolenda og stjórnenda vinnustaða. Niðurstöður koma okkur starfsfólki Lífs og sálar ekki á óvart, höfum við einnig tekið eftir ákveðnu mynstri hvað varðar ólík samskipti kynjanna í okkar greiningum á EKKO málum (einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi). Við þurfum víst að halda okkur við kynjatvíhyggju hér, en mikilvægt er einnig til framtíðar að skoða málin út frá víðara litrófi kynja. Okkar athuganir í EKKO málum og vinna með fjölmörgum vinnustöðum, styðja við niðurstöður rannsóknarinnar í helstu atriðum. Er bent á nokkur atriði í aðferðarfræði rannsóknarinnar sem ber að hafa í huga við túlkun niðurstaðna s.s. þá staðreynd að óskað var eftir þátttakendum á Facebook. Við slíkt val á þátttakendum, þó hentugt sé, er líklegt að niðurstöður skekkist. Þá er einnig bent á að frásagnir viðmælenda séu afturvirkar, þ.e. byggðar á minni frá allt að fimm árum. Einnig er bent á fleiri atriði sem kunna að skekkja niðurstöður, sem er virðingavert, enda vart hægt að hanna hina fullkomnu rannsókn. Að því sögðu, er að mínu mati alvarlegur ágalli á rannsókninni. Sú staðreynd að ekki lá fyrir staðfesing á því að þátttakendur rannsóknarinnar hafi í raun orðið fyrir einelti á vinnustað, heldur er sú ályktun einungis byggð á mati og upplifunum þátttakenda. Þá byggja niðurstöðurnar á þeim grundvelli að þátttakendur hafi orðið fyrir einelti, og séu því þolendur eineltis en ekki meintir þolendur eineltis. Og að meintir gerendur eineltisins séu í raun gerendur. Nú kunna sum að undrast, jafnvel hneykslast. Orðræðan í samfélaginu hefur vitanlega verið sú undanfarin ár að við viljum trúa þeim sem telja sig þolendur ofbeldis og eineltis. Málin eru hins vegar ekki svo einföld að mínu mati. Skoðum það nánar. Hugtakið einelti er alvarlegt. Það er hins vegar fjölmargt sem getur farið úrskeiðis í starfsumhverfinu og í samskiptum fólks á vinnustöðum sem veldur fólki vanlíðan. Ýmis konar hegðun og framkoma sem er ekki í eðli sínu jákvæð, er jafnvel brot á vinnuverndarlögum nr.46/1980 en nær þó ekki skilgreiningu um einelti. Af þeim eineltismálum sem hafa komið til úttektar hjá Lífi og sál undanfarin 25 ár, hafa niðurstöður í einungis 20% tilfella stutt kvörtun þolanda að um einelti hafi verið að ræða. Í 30% mála var niðurstaða sú að ekki væri um einelti að ræða heldur einstök neikvæð og erfið samskipti, en í 50% tilfella voru aðrar ástæður fyrir vanlíðan meints þolanda. Vert er að nefna að aldrei skal efast um vanlíðan þeirra sem telja sig hafa orðið fyrir einelti á vinnustað eða í öðrum aðstæðum, sú upplifun er sönn og í flestum tilfellum djúpstæð. Ef við lítum nánar á aðrar skýringar á vanlíðan á vinnustað, þá má nefna ýmislegt. Slakir stjórnunarhættir, pirringur og gremja, neikvæð atvik í starfsumhverfinu sem ná þó ekki skilgreiningu á einelti og eru því á gráu svæði, einstaka neikvæð atvik (en einelti er mynstur neikvæðrar og niðurlægjandi hegðunar), mikil vanlíðan meintra þolenda á vinnustaðnum af öðrum ástæðum s.s. vegna streitu, álags, erfiðleika í einkalífinu og jafnvel kulnunar o.fl. Ef við leikum okkur aðeins, með smá fyrirvara, og yfirfærum þá tölfræði sem úttektir Lífs og sálar hafa sýnt, má álykta að tveir af þátttakendum rannsóknarinnar hafi í raun orðið fyrir einelti, fimm sannarlega orðið fyrir einhvers konar óþægindum eða jafnvel einstaka óásættanlegri hegðun og þrír þátttakenda ekki orðið fyrir einelti, né öðru í raun. Líkt og fyrr greinir átta ég mig á því að engin rannsókn, né rannsóknaraðferð er fullkomin og því eflaust einnig skekkjur í okkar tölfræði. Það er þó hættulegt að ætla upplifanir manneskja sem staðreyndir án nánari skoðunar, enda felst einelti ávallt í einhvers konar samskiptum milli fólks, og því fleiri hliðar. Kristín Helga bendir á mikilvægi viðbragða stjórnenda, upplifun þátttakenda á misbresti og stuðningsleysi þeirra og ágöllum í verkferlum og viðbragðsáætlunum. Að mínu mati eru þetta mikilvægustu niðurstöður rannsóknarinnar. Sé ekki tekið á málum, séu verkferlar og viðbragðsáætlanir ekki til staðar eða gölluð, og sé ekki hlustað á starfsfólk sem kvartar undan einelti á vinnustöðum, þá er voðinn vís. Það hefur starfsfólk Lífs og sálar of oft séð. Svo ég vísi aftur til þeirra ágalla sem ég tel á rannsókninni um að ekki hafi verið staðfest að um einelti hafi raunverulega rætt í tilfelli þátttakenda, þá vil ég benda á að jafn mikilvægt er að meintir gerendur fái að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Í sumum tilfellum til að sannreyna að um einelti hafi verið að ræða, og í öðrum tilfellum til að rétta við orðspor sitt og æru. Einnig í þeim 50% tilfella þar sem eitthvað annað var upp á teningnum, er ekki síður mikilvægt að þau atriði komi upp á yfirborðið á vinnustaðnum svo megi bæta úr og koma í veg fyrir vanlíðan starfsfólks og jafnvel einelti síðar meir. Ég vil þakka Kristínu Helgu fyrir að koma málefnum eineltis í deigluna, hennar vinnu við rannsóknina og ritgerðarskrifin. Ritgerðin er mjög áhugaverð og ég hvet öll sem hafa áhuga á málefninu til að lesa hana, sér í lagi mannauðsfólk og aðra stjórnendur. Um leið vil ég afsaka leiðindin í mér. Þau eru í þágu vísindanna. Aftur, ég átta mig á því að það er nær ógjörningur að framkvæma fullkomna rannsókn. Mögulega væri álitlegt næsta skref að framkvæma sambærilega rannsókn á meðal fólks sem staðfest er með formlegum hætti, að séu þolendur eineltis á vinnustað. Einnig er mikilvægt að vinna að breyttum samskiptaháttum á meðal íslenskra kvenna hvað varðar tilhneigingu okkar að eiga ekki bein og hreinskiptin samskipti. Já ég sagði það! Þetta er vandamál víða, bæði innan og utan vinnustaða. Höfundur er mannauðsráðgjafi, sálfræðingur og meðeigandi hjá Lífi og sál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun