Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Sindri Sverrisson skrifar 26. ágúst 2026 14:33 Stiven Valencia á stórmóti með íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm Valsarinn uppaldi Stiven Valencia, landsliðsmaður í handbolta, ber sínu gamla félagi ekki vel söguna eftir samningaviðræður í sumar og kveðst „ótrúlega ósáttur“ með þróun þeirra.
Þetta segir Stiven við Handkastið í dag en hann er samningslaus og í leit að nýju félagi eftir að þriggja ára dvöl hans hjá portúgalska félaginu Benfica lauk í vor. Vísir leitaði eftir viðbrögðum hjá Fannari Erni Þorbjörnssyni, formanni handknattleiksdeildar Vals, sem kvaðst ekki vilja tjá sig. Stiven er að jafna sig eftir aðgerð vegna axlarmeiðsla og reiknar með að geta byrjað aftur að spila í október. Það vonaðist hann til þess að gera með Val en viðræður við félagið hafa ekki skilað árangri. „Ég er mjög ósáttur með það hvernig Valur hefur tekið á móti mér síðustu vikur. Það kom ekkert annað til greina hjá mér til að byrja með en að koma heim í Val og spila fyrir mitt uppeldisfélag. Ég lét þá vita strax að ég væri tilbúinn að koma heim og spila fyrir Val,“ segir Stiven við Handkastið. Stiven sló í gegn sem leikmaður Vals og var fenginn þaðan til Benfica í Portúgal sumarið 2023.vísir/Diego Hann veltir fyrir sér hvort að fjárhagsvandræði valdi því að Valur bjóði honum ekki viðunandi samning og segir að svo virðist sem að eina von hans um að koma aftur til félagsins sé að gera það í sjálfboðavinnu. Hann sé ótrúlega ósáttur við hvernig honum hafi verið tekið, sem „uppöldum leikmanni með stórt Valshjarta“: „Þeir hafa í raun skilið mann svolítið eftir einan eftir í myrkrinu,“ segir Stiven. Stiven hefur einnig rætt við þýska félagið Erlangen með það í huga að hann kæmi til félagsins næsta sumar en segir félagið hafa stigið á bremsuna vegna fyrrgreindra axlarmeiðsla. Áhuginn sé þó áfram til staðar.
Olís-deild karla Valur Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira