Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Smári Jökull Jónsson skrifar 29. ágúst 2026 13:32 Börn allt niður í níu ára aldru hafa þurft að leita meðferðar vegna átröskunar hjá BUGL. Vísir/Vilhelm Formaður SÁTT segir sífellt yngri börn fá aðstoð vegna átröskunar og þá þrói margir ungir afreksíþróttamenn með sér átröskun sem sé vangreind hjá strákum. Hún segir samfélagsmiðla og opinskáa umræðu um notkun þyngdarstjórnunarlyfja hafa haft neikvæð áhrif.
Að sögn Elínar Vigdísar Guðmundsdóttur formanns SÁTT, samtaka um átraskanir og aðrar raskanir, hefur aukin notkun samfélagsmiðla og mikil einangrun í kórónuveirufaraldrinum haft neikvæð áhrif. „Þetta hefur neikvæð áhrif á sjálfsmynd og líkamsmynd þeirra og óheilbrigð áhrif á þeirra þroska í raun og veru. Þetta birtist þarna helst í raun og veru hjá okkur að það eru að koma yngri og yngri krakkar inn í meðferð á BUGL við átröskunum,“ segir Elín í samtali við fréttastofu. Elín Vigdís er formaður SÁTT.Vísir Börn allt niður í níu ára hafa komið í meðferð hjá BUGL. Á samfélagsmiðlum er algengt að áhrifavaldar birti myndbönd tengd mat og matargerð og með upplýsingum um næringu sem eigi ekki við um börn. „Þegar fullorðið fólk er að nota svona leiðir til að breyta líkamsvexti sínum eða fara í megranir og þess háttar, þá er það allt annað heldur en þegar börn neyta þessara upplýsinga og fara að breyta mataræði sínu til að breyta líkama sínum.“ „Það er mjög skaðlegt og þetta eru ekki endilega réttar upplýsingar út frá heilsu og þetta er alls ekki einstaklingsmiðað,“ bætir Elín við. Mjög margir strákar í afreksíþróttum þróa með sér átraskanir Það sé skaðlegt ef normið sé orðið að fólk geti gripið til lyfja til að hafa áhrif á hvernig það líti út og fullorðnir beri ábyrgð á að taka þá umræðu við börnin. „Ég er ekki að tala niður þyngdarstjórnunarlyf, því þau eru auðvitað mjög gagnleg fyrir ákveðinn hóp sem glímir við sykursýki og mikla ofþyngd og þess háttar. Við getum ekki litið framhjá því að þetta hefur óbein áhrif á hvernig börn líta á fjölbreyttan líkamsvöxt. Krakkar eru að þroskast og við erum öll ólík í laginu en áherslan á hvernig líkaminn lítur út er ekki endilega út frá heilsu heldur útliti,“ segir Elín. Þá fjölgi strákum sem glími við vandamál af þessu tagi. „Átröskunin sést ekkert endilega utan á fólki, sérstaklega þeir sem eru með svona vöðvafíkn. Eða eru komnir í það sem kallast orthorexía, þar sem er mjög mikil áhersla á hreinan mat eða að þú verðir að borða ákveðið mörg grömm af prótíni og allt þetta. Þetta getur verið mjög mikil þráhyggja og mjög mikil árátta.“ „Þetta er vangreint hjá strákum og þeir átta sig ekkert endilega á vandamálinu snemma.Það eru mjög margir strákar sem eru í afreksíþróttum til dæmis sem eru að þróa með sér átraskanir,“ segir Elín að lokum.
Matur Börn og uppeldi Samfélagsmiðlar Heilbrigðismál Landspítalinn Heilsa Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira