Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Freyja Þórisdóttir skrifar 30. ágúst 2026 19:43 Lestarstöðin í borginni Rosenheim í Þýskalandi, sunnudaginn 30. ágúst 2026, þar sem bresk kona var stungin til bana snemma í morgun. AP Bresk kona, 31 árs gömul, er látin eftir að ráðist var á hana og hún stungin á Rosenheim-lestarstöðinni í Þýskalandi um klukkan eitt í nótt að staðartíma. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést en hún hafði hlotið mjög alvarlega áverka. Maður sem er grunaður um verknaðinn verður leiddur fyrir dómara á eftir.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun staðarmiðilsins DPA um málið en þar er einnig greint frá því að lögreglumenn hafi handtekið 27 ára þýskan mann á vettvangi örskammri stundur eftir árásina. Leiddur fyrir dómara á eftir Aðdragandi og ástæða árásarinnar séu í rannsókn en hinn grunaði, sem sé frá Fürstenfeldbruck-héraði, verði leiddur fyrir dómara síðar í dag. Lögreglan hafi beðið alla sem kunna að hafa orðið vitni að rifrildi eða því sem gæti hafa virkað eins og árás eða slagsmál á stöðinni seint á laugardag eða snemma á sunnudag að hafa samband. Ekki liggur fyrir hvort þau þekktust eða hvað konan var að gera í Bæjaralandi, að því er DPA greinir einnig frá. Tengist ekki viðburðinum Fjöldi ferðafólks sem leggur leið sína frá Þýskalandi og til austurrískra borga á borð við Vín, Salzburg og Innsbruck tekur lest frá stöðinni og er þar oft og tíðum mikil örtröð og mannmergð. Rosenheimer Herbstfest, viðburður svipaður Oktoberfest-bjórhátíðinni, fer nú fram á svæðinu. Í frétt DPA er haft eftir Abuzar Erdogan, borgarstjóra Rosenheim, að „ekkert bendi til öryggisógnar í borginni okkar eða tengsla við Herbstfest-hátíðina“. „Rannsóknarlögreglan vinnur náið með saksóknaraembættinu að því að rannsaka aðstæður og ástæður glæpsins,“ hafi hann einnig skrifað í yfirlýsingu.
Erlend sakamál Þýskaland Bretland Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Sjá meira