Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Lovísa Arnardóttir skrifar 1. september 2026 12:01 Hjálmar les ekkert í þessi skilaboð en vill finna þá sem standa fyrir skemmdarverkunum. Aðsend Skemmdarverk voru unnin á gröfum og öðrum vinnuvélum í eigu verktakafyrirtækisins G. Hjálmarsson á Akureyri. Fyrirtækið hefur verið við vinnu í nýju Móahverfi í um fjögur ár. Eigandi segir tjónið hlaupa á milljónum. Spreyjað hafi verið með olíulakki og heilspreyja þurfi vélarnar upp á nýtt og merkja þær. „
Við erum að vinna þarna að uppfyllingu Móahverfis, uppbyggingu á nýju íbúðahverfi, og erum búin að vera þarna og erum í öðrum áfanga hverfisins og erum búin að vera þarna í á fjórða ár, í sátt og samlyndi við íbúa,“ segir Hjálmar Guðmundsson, einn eigenda fyrirtækisins. Móahverfi er nýtt íbúðahverfi í norðvesturhluta Akureyrar þar sem gert er ráð fyrir að byggðar verði allt að 1.100 íbúðir á næstu árum. „Ég skil ekki alveg hvert þjóðfélagið er að fara með þetta,“ segir hann og að undanfarið hafi verið brotist inn hjá byggingafyrirtækjum á svæðinu og það virðist einbeittur brotaviljinn. Þetta sé alltaf gert seint á kvöldin eða að nóttu til. Hér stendur á hliðinni öfund. Aðsend Hann segir menn hafa verið við vinnu allt til 23 í gærkvöldi og hafi svo verið mættir aftur klukkan sjö í morgun og því ljóst að skemmdarverkin hafi verið unnin á milli þess tíma. Hann segir lögregluna hafa verið kallaða til strax í morgun og aðilar frá tryggingafélaginu til að meta tjónið. Hann segir unnið að því að fá myndefni úr myndavélum í næsta nágrenni og vonar að þar verði hægt að fá einhverjar vísbendingar um hverjir standa að skemmdarverkunum. Skemmdarverk voru unnin á fjölda vinnuvéla á svæðinu. Aðsend Les ekkert í skilaboðin Á myndum sem Hjálmar deildi af skemmdarverkunum má sjá að með olíulakkinu hefur verið skrifað „öfund“ og „aumingi“ á einhverjar vélanna. Hann segist ekkert lesa í þessi skilaboð heldur einbeiti sér að því að finna þá eða þau sem voru að verki. „Ég horfi bara á þetta og að reyna að finna þessa aðila.“ Hann segir skemmdirnar verulegar. Starfsmenn hafi reynt að ná spreyinu af en það virðist sem þau hafi notað olíulakk og það sé erfitt að ná því af. Tækin virki en það liggi fyrir að þau þurfi að fara í heilsprautun á ný og merkingu. Hann segir allt stopp á framkvæmdasvæðinu eins og er en þeir sjái fram á að geta hafið störf að nýju eftir hádegi. Vinnan hefur verið stopp á meðan lögregla og tryggingarfélag vinnur á vettvangi. Aðsend Þurfi að tryggja öryggi í nýju hverfi Hann segir augljóslega þörf á að bæta öryggi í þessu nýja hverfi. Fólk sé byrjað að flytja inn í hús og börn að labba í skólann á morgnana. Það standi til að setja upp myndavélar. „Ég vil að bæjarbúar búi við meira öryggi en þetta. Við erum farin að búa við eitthvað annað þjóðfélag en maður er vanur, við höfum sloppið vel í egnum árin, verktakar og aðrir, það er einhver herferð.“ Eignaspjöll og rannsókn á frumstigi Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra er rannsókn í gangi en á frumstigi. Enn er unnið að því að afla upplýsinga og gagna.
Lögreglumál Akureyri Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira