Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Áróra L Davíðsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 1. september 2026 22:46 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það í höndum einstakra stéttarfélaga hvort að kjarasamningum verði rift eða ekki. Lýður Valberg Forsætisráðherra segist vongóð um að finna ákjósanlega lendingu í ljósi forsendubrests kjarasamninga. Ríkisstjórnin muni funda í Þjóðhagsráði á fimmtudaginn og kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir því að kjarasamningar haldist.
Ríkisstjórnin hafi verið í góðu samtali bæði við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins í sumar, sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra aðspurð hvernig ríkisstjórnin ætli að koma til móts við núverandi ástand. Í ályktun fulltrúa VR og fagfélaga sem samþykkt var á fundi þeirra í gær segir að svo að kjarasamningar geti haldið gildi sínu þurfi að leiðrétta kjarasamningsbundin laun gagnvart verðbólgu. Auk þess þurfi að fjölga frídögum til að koma til móts við þjónustuskerðingar við leik- og grunnskólabörn og tryggja raunverulegt þak á verð- og gjaldskrárhækkanir. Samninganefndir VR, LÍV og fagfélaganna harma að forsendur kjarasamninga hafi brostið og en lýsa þær eindregnum vilja til þess að finna leiðir svo kjarasamningar geti haldið gildi sínu í ályktuninni. „Við erum að vinna með ákveðin úrræði, meðal annars sem birtast á þingmálaskrá varðandi vinnumarkaðsaðgerðir og verðtryggingarmál,“ sagði Kristrún. Ríkisstjórnin stefni á að funda í Þjóðhagsráði á fimmtudaginn og fara yfir stöðu mála og kynna hvað sé í boði til þess að halda samningum í gildi. Aðilar að Þjóðhagsráði eru formenn stjórnarflokkanna ásamt meðal annars forystufólki Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. „Við munum funda í þjóðhagsráði núna á fimmtudaginn, þar sem við munum fara aðeins yfir stöðu mála og kynna hvað gæti verið í boði til þess að liðka fyrir að ekki verði sagt upp samningum.“ „Auðvitað vil ég leggja áherslu á það að við getum komið með ákveðin úrræði inn. Það er síðan í höndum stakra stéttarfélaga hvort þau ákveði að rifta þessum samningum eða ekki. En ég ætla að leyfa mér að vera vongóð um að við finnum einhverja ákjósanlega lendingu,“ sagði Kristrún.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Stéttarfélög Efnahagsmál Tengdar fréttir Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir undarlegt að hún sé ekki partur af samtali stjórnvalda, atvinnurekenda og verkalýðsforystu um viðbrögð við verðbólgu og brostnum forsendum kjarasamninga. Það séu ekki lýðræðisleg vinnubrögð að halda henni utan samtalsins og hún vonist til þess að vera tekin inn í það samtal í vikunni áður en mögulegar aðgerðir verði kynntar. 31. ágúst 2026 08:42 Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Eftir verðbólgutíðindi gærdagsins er ljóst að forsendur kjarasamninga eru brostnar og heimild til að segja þeim upp virkjast 1. september. Fjármála- og efnahagsráðherra segir stjórnvöld hafa unnið að því síðan í vor, ásamt aðilum vinnumarkaðarins, að reyna að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið verði nýtt. Nú sé mjög stutt í að aðgerðir verði kynntar. 28. ágúst 2026 12:19 „Þetta er ekki alveg óvænt“ Brostnar forsendur kjarasamninga komu hvorki Bjarna Benediktssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins, né Höllu Gunnarsdóttur, formanni VR á óvart. Staðan sé alvarleg en telur Bjarni að samningsaðilar þurfi nú að setjast niður og rýna í stöðuna. Halla telur að verði ekkert gert sé það óhjákvæmlegt að segja upp kjarasamningunum. 27. ágúst 2026 22:25 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir undarlegt að hún sé ekki partur af samtali stjórnvalda, atvinnurekenda og verkalýðsforystu um viðbrögð við verðbólgu og brostnum forsendum kjarasamninga. Það séu ekki lýðræðisleg vinnubrögð að halda henni utan samtalsins og hún vonist til þess að vera tekin inn í það samtal í vikunni áður en mögulegar aðgerðir verði kynntar. 31. ágúst 2026 08:42
Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Eftir verðbólgutíðindi gærdagsins er ljóst að forsendur kjarasamninga eru brostnar og heimild til að segja þeim upp virkjast 1. september. Fjármála- og efnahagsráðherra segir stjórnvöld hafa unnið að því síðan í vor, ásamt aðilum vinnumarkaðarins, að reyna að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið verði nýtt. Nú sé mjög stutt í að aðgerðir verði kynntar. 28. ágúst 2026 12:19
„Þetta er ekki alveg óvænt“ Brostnar forsendur kjarasamninga komu hvorki Bjarna Benediktssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins, né Höllu Gunnarsdóttur, formanni VR á óvart. Staðan sé alvarleg en telur Bjarni að samningsaðilar þurfi nú að setjast niður og rýna í stöðuna. Halla telur að verði ekkert gert sé það óhjákvæmlegt að segja upp kjarasamningunum. 27. ágúst 2026 22:25