Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 2. september 2026 14:02 Minningarstundir verða haldnar í dag íLágfellskirkju og Háteigskirkju vegna ungmennanna sem létust í umferðarslysi aðfararnótt mánudags. Vísir Minningarstundir verða haldnar í dag í Lágafells- og Háteigskirkju vegna ungmenna sem létust í bílslysinu við Krýsuvíkurveg. Prófastur segir mikilvægt að halda vel utan um hvort annað á svo erfiðum tímum. Fjölmargir eigi um sárt að binda.
Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur í Kjalarnesprófastsdæmi, segir mikilvægt að samfélagið haldi þétt utan um unga fólkið og fjölskyldur þeirra sem létust í bílslysinu við Krýsuvíkurveg. Minningar- og bænastundir verða haldnar í Lágafellskirkju og Háteigskirkju í dag. „Við erum, eins og allir aðrir, harmi slegin og okkar er að halda eins vel utan um fólkið okkar og sérstaklega unga fólkið okkar og við getum,“ segir Hans Guðberg. Snertir fjölmarga Minningar- og bænastund verður í Lágafellskirkju klukkan 17:30 og önnur í Háteigskirkju klukkan 18. „Þessar minningar- og bænastundir eru til þess að við getum komið saman og haldið utan um hvert annað. Þetta snertir fjölmarga,“ segir Hans. Ganga veg sorgarinnar með fjölskyldunum Hans segir hlutverk kirkjunnar nú vera að styðja við fjölskyldurnar og unga fólkið sem glímir við sorg og áfall vegna slyssins. „Okkar er að ganga veg sorgarinnar með þessum fjölskyldum og þessu unga fólki sem hefur upplifað svona sáran missi og mikið áfall.“ Hann segir slíkan harm jafnframt geta vakið upp erfiðar minningar og eldri sár hjá fólki. „Við vitum að þetta getur vissulega ýtt upp gömlum sárum. Við eigum það sameiginlegt að það er best fyrir okkur að halda utan um hvert annað og gera það eins vel og fallega og okkur er framast unnt.“ „Skiptir miklu máli að koma saman“ Mikið hefur verið rætt um slysið undanfarna daga og ýmsar sögusagnir farið á kreik. Hans segir mikilvægast á þessari stundu að fólk hlúi hvert að öðru. „Það er fyrst og síðast að halda utan um hvert annað og hlúa hvert að öðru.“ Hann segir samveru geta skipt miklu þegar samfélag verður fyrir svo þungu áfalli. „Það er gott að koma saman og það skiptir miklu máli að finna styrkinn í hvort öðru, þennan faðm sem kirkjan vissulega getur verið og við öll sem samfélag. Þetta snertir stór samfélög og stóra hópa,“ segir Hans Guðberg.
Þrír létust í banaslysi á Krýsuvíkurvegi Lögreglan Trúmál Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira