Hækkun hjá Heilsu hf. Nota bene! Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar 3. september 2026 09:00 Við erum öll hluthafar í fyrirtækinu og höfum flest skoðanir á gengi þess, gæðum og þjónustu. Það skiptir mjög miklu máli í lífi okkar flestra, frá vöggu til grafar og stundum skiptir það sköpum. Ég er að tala um heilbrigðiskerfið. Við Íslendingar höfum lengi verið stolt af þessu fyrirtæki okkar ogjafnvel stært okkur af því. Gott ef heilbrigðiskerfið hér er ekki á hátíðarstundum best í heimi, ekki síst vegna þess að við trúum því að það sé gjaldfrítt fyrir notendur, eftir að hafa borgað skatta sem eiga að standa undir rekstri þess. Heilsa hf er ekkert venjulegt fyrirtæki sem snýst um að hámarka gróða hluthafa heldur snýst mikilvægi þess um að þjónusta þá og það hefur ekkert breyst enda búum við að góðu heilbrigðiskerfi. En á undanförnum árum virðist sem verið sé að kroppa í veski hluthafanna – umfram skattpeningana. Ert þú í sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun eða talþjálfun? Þá ættir þú að lesa þessa grein því nú þarftu að borga sérstakt komugjald, þ.e. þú þarft t.d.að borga meira fyrir sjúkraþjálfun en áður. Komugjaldið verður ótengt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu og því alltaf hið sama, óháð fjölda koma. Þetta er glænýr skattur sem kemur niður á þeim sem síst skyldi! Komugjöld eru það sem koma skal Ekki misskilja mig, ég er þakklát fyrir íslenska heilbrigðiskerfið og tel það standa framarlega. En ég hef samt áhyggjur, áhyggjur af því að sumir séu þar jafnari en aðrir. Að sumir hafi ekki efni á að leita til þess vegna umframkostnaðar. Í Stjórnartíðindum þann 6. apríl segir að frá og með 1. september verði tekið upp sérstakt komugjald fyrir þjálfun, þ.e. sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun og ritar undir það Alma Möller heilbrigðisráðherra. Verður almennt komugjald 1.500 kr., 1000 kr. fyrir aldraða og 500 kr. fyrir öryrkja í hvert skipti. Kostnaði velt yfir á öryrkja Í þessari grein ætla ég að taka fyrir sjúkraþjálfun þar sem það er stærsti liðurinn í þessari gjaldtöku og sú þjálfun sem flestir nota en þar á eftir kemur iðjuþjálfun. Ef við byrjum á öryrkjum þá meta flestir öryrkjar heilsu sína almennt slæma. Í rannsókn sem gerð var af Vörðu, Rannsóknarastofnun vinnumarkaðarins, sem var sjálfsmatskönnun meðal öryrkja í desember 2023 fyrir ÖBÍ réttindasamtök, mátu hátt í sjö af hverjum tíu öryrkjum líkamlega heilsu sína frekar slæma eða mjög slæma, svo þörfin hjá öryrkjum fyrir sjúkraþjálfun er mikil. Þar kemur líka í ljós að um þriðjungur öryrkja hafði neitað sér um sjúkraþjálfun (34,5%). Og þá var ekkert komugjald umfram greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu. Kostnaður var samt hindrun! Segjum að þorri öryrkja þurfi að fara tvisvar í viku til sjúkraþjálfara, sem er ekkert óeðlilegt og sumir þurfa á ævilangri þjálfun að halda til þess að geta haldið virkni sinni í samfélaginu, þá gerir það 4000 kr. – sem getur verið óyfirstíganlegt fyrir marga enda eru ráðstöfunartekjur öryrkja í langflestum tilfellum lágar. Og aldraðir dúsa ekki í horni Aldraðir eru annar hópur sem komugjaldið bitnar einnig illa á en fyrir hverja komu til sjúkraþjálfara greiða þeir 1000 kr. Segjum að aldraðir fari einu sinni til tvisvar í viku til sjúkraþjálfara þá gerir það 4000-8000 kr. á mánuði en sumir þurfa á fleiri skiptum að halda. Fjölmargt eldra fólks munu ekki ráða við þessa gjaldtöku. Um 20% eldra fólks á Íslandi er með tekjur undir lágmarkstaxta á almennum vinnumarkaði. Hækkandi aldri fylgir oft skert heilsa en eldra fólki í íslensku þjóðfélagi fer fjölgandi.Þjóðin er að eldast og það skiptir miklu að aldraðiur geti sótt þessa þjónustu til þess einnig að geta verið virkt á hinum ýmsu sviðum samfélagsins. Svo er það til þess að gera fullfrískt fólk Og þá erum við komin að almenna komugjaldinu og því hæsta, sem er 1500 kr. á mánuði. Það væri hægt að rökstyðja með því að í þeim hópi væri sennilega nokkuð frískt fólk sem flest væri á vinnumarkaði og gæti því vel borgað þessa upphæð. Hvað góða heilsu varðar gæti það verið rétt en það segir ekki alla söguna. Í lífskjararannsókn Hagstofu Íslands má finna upplýsingar, aftur til ársins 2018, um sjálfmetna heilsu landsmanna en um 77% töldu sig við góða heilsu það árið. Hins vegar bregður svo við að þegar upplýsingarnar eru skoðaðar með tilliti til tekjufimmtunga má sjá að einungis 66% í lægsta tekjufimmtungnum telja sig vera við góða heilsu á móti 86% þeirra í efsta tekjufimmtungnum. Þetta gæti m.a. verið vegna fjárhagslegs álags og streitu sem getur haft neikvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu. Sjúkraþjálfun einu sinni í viku þýðir því 6.000 kr. og tvisvar í viku 12.000 kr. á mánuði. Og ég minni á að þetta er utanaðgengi að greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu Aðgengi allra hópa að sjúkraþjálfun skiptir máli Ergo: Hækkun komugjalda bitnar verst á þeim sem minnstar hafa tekjurnar og versta hafa heilsuna, öryrkja, aldraða og þá lægst launuðu! Aðgengi allra þjóðfélagsþegna að heilbrigðisþjónustu hlýtur að vera keppikefli stjórnvalda og það fæst ekki með því að velta kostnaði út í verðlagið. Hingað til höfum við verið sammála um að fjármagna heilbrigðiskerfið með sköttunum okkar gegn því að hafa jafnan aðgang að því óháð efnahag. Svo virðist sem horfið hafi verið af þeirri leið. Komugjaldið er fast og utan kerfis. Getur verið að þessi útfærsla hafi ekki verið hugsuð til enda? Var ekki líka einhver sem talaði um að hækkun gjalda og gjaldaliða hins opinbera geti m.a. verið drifkraftur verðbólg. Heilbrigðisráðherra segir í þessum sömu Stjórnartíðindum að hún hyggist hefja endurskoðun greiðsluþátttökukerfisins með áherslu á jöfnuð og aðgengi óháð efnahag. Það er erfitt að sjá hvernig nýjasta útspilið rímar við það. En Nota Bene, vonandi ganga framtíðarhugmyndir um að Heilsa hf verði okkar allra fyrr en seinna - án skattpíningar! Höfundur er kennari, blaðamaður, meistaranemi í sagnfræði og öryrki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun