Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar 3. september 2026 22:45 Rúmlega helmingur eigna lífeyrissjóða er í svonefndum ASÍ/SA sjóðum og fjórðungur í opinberum sjóðum. Þessum sjóðum hefur gengið vel í gegnum tíðina. Kostnaðarhlutföll hafa haldist lág og ávöxtun verið góð til lengri tíma litið. Það er óþarft að fjalla um að íslenska lífeyriskerfið skipi sér ár eftir ár í efstu sæti Mercer-lífeyrisvísitölunnar. Það er óþarfi að nefna að hvergi í OECD eyðir íslenska ríkið minna til lífeyrismála en á Íslandi og það er óþarfi að nefna að verulega hefur dregið úr fátækt meðal eldri borgara síðustu áratugi. Við vitum að við eigum gott kerfi. Vel þekkt fyrirkomulag Það fór illa fyrir þöllinni sem segir frá í Hávamálum. Hún stóð á þorpi (bersvæði), naut ekki skjóls og hrörnaði því. Sömu lögmál gilda um lífeyrissjóði. Það er ekki nóg fyrir þá að vera eins og tré með digran stofn, þeir lifa aðeins af ef ræturnar teygja sig djúpt og þeir fá skjól frá tímabundnum óveðrum. Hlutverk aðila vinnumarkaðarins á Íslandi hefur verið að veita þetta skjól. Það fyrirkomulag að aðilar vinnumarkaðarins semji um lífeyrismál í kjarasamningum og skipi fulltrúa launafólks og atvinnurekenda í lífeyrissjóðum er vel þekkt fyrirkomulag í Evrópu, þar sem það nefnist paritarian institutions. Þetta fyrirkomulag hefur gefist einstaklega vel. Nægir í þeim efnum að vísa til þess að í þeim þremur löndum Evrópu sem raðað hafa sér í efstu þrjú sæti Mercer lífeyrisvísitölunnar – í Danmörku, Hollandi og á Íslandi – er þetta fyrirkomulag við lýði. Víti til að varast Þýskaland hefur í tvígang sett upp lífeyrissjóðakerfi sem gekk út á sjóðasöfnun. Fyrra kerfið var sett upp í lok 19. aldar, en þegar kom að því að fjármagna hernaðarbrölt stjórnvalda í fyrri heimsstyrjöldinni ákváðu stjórnvöld að nota uppsafnaða lífeyrissparnaðinn til að kaupa ríkisskuldabréf. Aftur hófst sjóðasöfnunarkerfið á 4. áratug 20. aldar og aftur rann lífeyrissparnaðurinn í hernaðarbrölt. Það eru einnig til nýlegri dæmi um ásælni stjórnvalda. Á 10. áratug 20. aldar komu Ungverjar sér upp þriggja stoða lífeyriskerfi, þar sem önnur stoðin gekk út á sjóðasöfnun eins á Íslandi. Ríkisstjórn Orban þjóðnýtti lífeyriskerfið á árunum 2010 og 2011 gegn loforði um að sjóðfélagar fengju lífeyri greiddan af ríkinu í framtíðinni. Sömu sögu er að segja í Póllandi, þar sem pólska ríkisstjórnin þjóðnýtti stóran hluta lífeyriskerfisins á árunum 2013-2014. Sömu rök voru notuð og í Ungverjalandi: Enginn bæri skertan hlut frá borði því ríkið myndi sjá um lífeyrisgreiðslur í framtíðinni. Það er ekki skrítið að lífeyrissjóðum gangi vel einmitt í þeim löndum þar sem aðilar vinnumarkaðarins eru bakhjarlar lífeyriskerfisins. Sagan sýnir nefnilega að það þarf öfluga aðila til að vernda kerfin fyrir opinberri ásælni. Viðskiptaráð vinni heimildavinnuna betur Nýlega birti Viðskiptaráð umfjöllun um lífeyriskerfið. Margt þar kom þeim sem þekkja til íslenska lífeyriskerfisins spánskt fyrir sjónir. Eitt slíkt var fullyrðing Viðskiptaráðs um að einhver sérstakur umboðsvandi væri til staðar í lífeyriskerfinu og vitnaði Viðskiptaráð til bandarískrar rannsóknar máli sínu til stuðnings. Í bandarísku rannsókninni er fjallað um pólitískt skipaðar stjórnir bandarískra lífeyrissjóða og var það niðurstaða rannsóknarinnar að lífeyrissjóðir með slíkum stjórnum skiluðu verri árangri en aðrir. Óljóst er hvers vegna Viðskiptaráð teflir þessari rannsókn fram, sem fjallar á engan hátt um það þegar fulltrúar launafólks og vinnuveitenda skipa í stjórnir lífeyrissjóða. Vart þarf að taka fram að engir stjórnarmenn í ASÍ/SA sjóðum eru skipaðir af stjórnvöldum. Þá sleppir Viðskiptaráð því að minnast á þá niðurstöðu rannsóknarinnar, að þeir sjóðir þar sem stjórnir eru aðallega skipaðar kjörnum sjóðfélögum hefðu einnig skilað verri árangri en aðrir. Ekki verður því séð að rannsóknin styðji sérstaklega málstað þeirra sem tala fyrir beinu sjóðfélagalýðræði fremur en því fulltrúalýðræði sem við búum við í dag. Þess má reyndar geta að kosningarþátttakan í íslenskum sjóðum þar sem stjórnir eru kjörnar af sjóðfélögum hefur verið dræm, sem bendir til þess að sjóðfélagalýðræði brenni almennt ekki á fólki. Ekki umbylta kerfi sem virkar vel Íslenskir lífeyrissjóðir eru svo sannarlega ekki hafnir yfir gagnrýni. Í ljósi stærðar þeirra og mikilvægis fyrir framtíðina þarf að vanda alla umfjöllun og byggja hana á traustum grunni. Þá þarf að hafa hugfast að lífeyriskerfið varð hvorki til sem söluafurð einkaaðila eða sem snjöll lausn stjórnvalda. Kerfið varð til við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og þangað sækja sjóðirnir umboð sitt. Höfundur er formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun