Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar 4. september 2026 09:01 Leggur þú þitt af mörkum til að styrkja fjölmiðla með áskrift eða stuðningi? Af hverju? Af hverju ekki? Fyrst af öllu vil ég byrja á að þakka fyrir stuðninginn við fjölmiðilinn TV1 Magazine. Fámennur og traustur hópur vina og vandamanna hefur séð til þess að TV1 hefur starfað í rúmt ár. Ritstjórnarstefnan er skýr og jafnvel full afneitun á ástandið á íslenskum fjölmiðlamarkaði! Við trúm því að þetta eru okkar bestu tímar í fjölmiðlun. Upplýsingaöflun hefur aldrei verið einfaldari og um leið flóknari. Það eru ótrúlegir möguleikar í framsetning á efni; tæknin er frábær og dreifing á efninu leikur einn. Fjölmiðlaumhverfið á Íslandi og auðvitað allstaðar í heiminum er í stöðugri mótun. Það er hægt að telja upp endalausar og raunverulegar hindranir. Síðustu fréttir af niðurskurði á fréttastofu Sýnar eru til marks um breytta tíma. En eru þetta samt ekki okkar bestu tímar miðað við „þá gömlu góðu daga“ þegar flokksblöðin réðu ríkjum á Íslandi? Þá var hvorki til farsími, tölva eða net, ekki hægt að ná í nokkrun mann nema í heimasíma og blöðin einbeittu sér að því að troða pólitískum skoðunum í þjóðina. Ef fjölmiðlar eiga að vera hið svokallaða fjórða valdið á Íslandi, í hópi með löggjafarvaldi, framkvæmdarvaldi og dómsvaldi þá verðum við öll að taka þátt í því að það sinni skyldum sínum. Það þurfa auðvitað allir að borga áskrift að Ríkisútgerðinni RUV sem þjóðin er vera sátt við og óþarfi að ræða frekar. Það er allt hitt sem hægt er að gera sem er stóra málið, frjáls fjölmiðlun að því marki sem starfsemin sé óháð pólitískum skoðunum eða sérhagsmunum. Það þýðir ekki að bíða eftir því að ríkisstjórnir eða stórfyrirtæki komi með hentugar lausnir sem tryggi starfsumhverfi fjölmiðla. Þvert á móti þá virðist það hreinlega vera hagstætt fyrir stórfyrirtæki og stóriðju að fjölmiðlar séu veikbyggðir og vanmáttugir. Þá er hægt að stunda sérhagsmunagæslu í friði, því enginn fjölmiðill er að teikna um heildarmyndina, draga saman og útskýra hvað raunverulega er að gerast. Áskrift kostar jafn mikið og ungnautagúllas Það er ekki hefð fyrir því síðustu ár að minnsta kosti að kaupa áskriftir að fjölmiðlum á Íslandi, sérstaklega eftir að Fréttablaðinu sáluga var dreift ókeypis til þjóðarinnar. Mogginn og símafyrirtækin Síminn og Sýn selja vitaskuld áskriftir að HBO og Enska fótboltanum, en það virðist vera sárafátt annað sem fólk vill kaupa eða styrkja þegar kemur að fjölmiðlum. Af hverju? Það kostar í raun og veru harla lítið að styrkja fjölmiðla á Íslandi eða annarstaðar í heiminum, á bilinu 1.500-8.000 á mánuði. Í stuttri verðkönnun TV1 Magazine kemur í ljós að það er bara brandari að fólki finnist áskrift eða stuðningur við fjölmiðla muni sliga heimilin. Hér eru tölur úr heimilisbókhaldinu: Bensín fólksbíll 8.845 kr Vegabréf 19.000 kr Ungnautagúllas 4.799 kr Rúðuvökvi 1.399 kr Panodil 699 kr 500 g nautahakk 1.350 kr NY times 1. 818 kr Skipt um ventil í framdekki 8. 530 kr Lakkrískonfekt 1 kg 1. 300 kr Sjálfstætt fólk, eftir Laxness 9.999 kr Þetta er nú allt og sumt. Það er hægt að styrkja hvaða fjölmiðil sem er starfræktur á Íslandi eða erlendis, um upphæð sem nemur verði á rúðuvökva, lakkrískonfekti og 500 g af nautahakki. Það munar um allt. Ríkisú tger ð in BBC Það var gaman að sjá ríkisútgerðina og fjölmiðlarisann BBC auglýsa í sumar hvað stofnunin stendur fyrir. Kynningin var herferð byggð á auglýsingu sem var fyrst birt 20.janúar árið1986. Þar pantaði John Gleese leikari sér í glas á ölstofu, mjög gramur yfir því hvað þjóðin fékk lítið fyrir árgjaldið að BBC sem var 58 pund á þeirra tíma verðlagi. Í nýju útgáfunni gerir grínistinn Romesh Ranganathan þetta ennþá persónulegra: „Hvað hefur BBC nokkru sinni gert fyrir mig“ Í ljós kemur að það er heilmikið sem stofnunin er að gera fyrir Romesh og bresku þjóðina. Stútfull dagskrá af fjölbreyttu efni, og BBC er mjög í mun að þakka fyrir sig, þakka breskum almenningi fyrir stuðninginn. Á Íslandi eru frjálsir fjölmiðlar með metnað til að sinna fjölbreyttu frétta og menningarstarfi og gera það sannarlega án verulegs stuðnings frá ríkisvaldinu. RUV siglir áfram sinn sjó með fullan byr, afnotagjöld frá þjóðinni og yfirráð á auglýsingmarkaði. Aðrir fjölmiðlar eru síður en svo einhver smábátaútgerð. Þess vegna getur almenningur á Íslandi endurorðað BBC spurninguna þannig að hún verði full af eftirvæntingu og tilhlökkun: „Hvað geta fjölmiðlar á Íslandi gert fyrir mig?“ Svarið er stutt: Þeir gera og geta gert líf þitt ríkulegra, ef þú vilt. TV1 Magazine er til í að standa frjálsu fjölmiðlavaktina áfram. Við höldum ekki með neinum. Við höldum með öllum. Því Fjórða valdið á Íslandi, það ert þú! Höfundur er ritstjóri fjölmiðilsins TV1Magazine. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölmiðlar Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun