Eyvindur P. Eiríksson látinn Lovísa Arnardóttir skrifar 4. september 2026 09:14 Ásatrúarfélagið deildi þessari mynd af Eyvindi. Ásatrúarfélagið Eyvindur P. Eiríksson, cand.mag., rithöfundur og Vestfjarðagoði Ásatrúarfélagsins, er fallinn frá. Greint er frá andláti hans í tilkynningu frá Ásatrúarfélaginu en hann var Vestfirðingagoði um árabil. Eyvindur fæddist þann 13. desember 1935 og var því níræður þegar hann lést.
Eftir Eyvind liggja fjölmörg verk, skáldsögur, ljóðabækur, leikrit og fleira. Eyvindur ólst upp á Hornströndum og á Ísafirði og stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri. Eftir stúdentspróf árið 1955 starfaði hann við sjávarútveg, byggingarvinnu og skrifstofustörf auk þess sem hann hóf kennslu. Árið 1964 lauk hann BA-prófi frá Háskóla Íslands í Reykjavík, þar sem hann lagði stund á dönsku, ensku og uppeldis- og kennslufræði. Síðar nam hann íslensku og finnsku og lauk prófi í íslenskri málfræði árið 1977. Hann starfaði einnig sem háskólalektor í Finnlandi, Danmörku og á Íslandi. Frá árinu 2007 bjó hann lengst af í Noregi. Eyvindur var níræður þegar hann lést. Vísir Eyvindur starfaði sem kennari um árabil og kenndi á ýmsum skólastigum í Reykjavík, Kópavogi og á Ísafirði. Þá hafði hann umsjón með útvarpsþættinum Daglegt mál hjá RÚV og starfaði um tíma sem fréttaritari RÚV á meðan hann bjó í Finnlandi. Úrklippa úr Mogganum árið 1997 þegar Eyvindur fékk bókmenntaverðlaun. Eyvindur gaf út fjölda skáldverka, Hvenær?, kom út árið 1974, Hvaðan – Þaðan (1978), Viltu (1989) og Vertu (1998) og ljóðabókina Óreiðum augum: heiðin ljóð. Vinur Eyvindar, Hilmar Örn Hilmarsson, samdi tónlist við ljóðin og bókin kom út ásamt geisladiski. Fyrsta útgefna skáldsaga Eyvindar, Múkkinn, kom út árið 1988. Eyvindur hlaut Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness og var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 1997 fyrir aðra skáldsögu sína, Landið handan fjarskans. Framhaldssagan Þar sem blómið vex og vatnið fellur kom svo út árið 1999. „Mér á ekki eftir að hlotnast meiri heiður um ævina,“ er haft eftir honum í umfjöllun Morgunblaðsins. Eyvindur lætur eftir sig sambýliskonu sína Gro Tove Sandsmark og fjögur börn sín, Rósu, Eirík, Eyjólf og Erp. Þau átti hann með Margréti Pálínu Guðmundsdóttur. Foreldrar hans voru Eiríkur A. Guðjónsson (1908–2007), sem var bóndi, sjómaður og verkamaður, og Gunnvör Rósa Samúelsdóttir (1905–1967). Árið 2015 var 80 ára afmæli hans fagnað með í Norræna húsinu og á barnum Sólon í Reykjavík. Þar héldu fræðimenn erindi um verk hans og feril og tónlistarfólk flutti ljóð hans. Rætt var við Eyvind á Vísi árið 2015 í tilefni af áttræðisafmæli hans.
Andlát Trúmál Tengdar fréttir Málfræðingur af nýja skólanum sem hefur séð heiminn Rithöfundurinn Eyvindur Pétur Eiríksson er heiðraður í dag, í tilefni af áttræðisafmæli hans. Eftir hann liggja um fjörutíu einstök verk. 5. desember 2015 13:45 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira
Málfræðingur af nýja skólanum sem hefur séð heiminn Rithöfundurinn Eyvindur Pétur Eiríksson er heiðraður í dag, í tilefni af áttræðisafmæli hans. Eftir hann liggja um fjörutíu einstök verk. 5. desember 2015 13:45