Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Valur Páll Eiríksson skrifar 5. september 2026 13:01 Jordon Ibe þótti gríðarmikið efni en hratt hefur fjarað undan ferli hans síðustu ár. vísir/getty Jordon Ibe, fyrrverandi leikmaður Liverpool, var í gær dæmdur fyrir að rífa fléttu af höfði þáverandi kærustu sinnar. Ibe þótti einkar efnilegur fótboltamaður en hefur farið rækilega af sporinu.
Hinn þrítugi Ibe sleppur við að sitja inni vegna brotsins þrátt fyrir að hafa verið dæmdur fyrir líkamsárás sem átti sér stað í rifrildi við þáverandi kærustu. Ibe er dæmdur fyrir að hafa rifið fléttu af höfði hennar. Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins, BBC, rifust þau Ibe og þáverandi kærasta hans Amie Mayson vegna meintrar peningaskuldar hans gagnvart henni. Mayson hafi kallað Ibe „dópista“, hann brugðist ókvæða við og rifið fléttu af höfði hennar sem hafi skilið eftir skallablett. Ibe sagðist upprunalega saklaus en því síðar og játaði sök. Fyrir rétti sagðist hann „hafa gert risastór mistök“ og bætti við að hann „iðraðist einlæglega“. Ibe var dæmdur til að sinna tólf mánuðum af samfélagsþjónustu, 80 klukkustunda af ógreiddri vinnu og 27 daga endurhæfingu. Yfir 100 leikir í úrvalsdeildinni Ibe þótti meðal efnilegri leikmanna Englands þegar Liverpool fékk hann frá Wycombe Wanderers 16 ára gamlan árið 2012. Hann lagði upp mark fyrir Phillippe Coutinho í fyrsta leiknum fyrir félagið 18 ára gamall. Alls spilaði Ibe 58 leiki fyrir Liverpool áður en hann var seldur dýrum dómum til Bournemouth. Hann yfirgaf Bournemouth árið 2020 hafandi spilað alls 119 leiki í ensku úrvalsdeildinni fyrir liðin tvö. Hann fór í utandeildina árið 2023, þá aðeins 27 ára gamall, eftir að hafa vart spilað fótboltaleik í kjölfar brotthvarfsins frá Bournemouth. Hann fór úr utandeildinni til Búlgaríu í fyrra en hefur verið án liðs frá því að samningur hans við Lokomotiv Sofiu rann út í sumar.
England Bretland Dómsmál Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Formúla 1 Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Fótbolti Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Fleiri fréttir Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Sjá meira