Handbolti

Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta

Sindri Sverrisson skrifar
Elliði Snær Viðarsson og félagar mæta Kúveit í janúar.
Elliði Snær Viðarsson og félagar mæta Kúveit í janúar. vísir/Vilhelm

Nýir mótherjar eru nú fundnir eftir að Egyptar sviku samkomulagið um að koma til Íslands í janúar og spila vináttulandsleiki við strákana okkar í íslenska handboltalandsliðinu.

HSÍ greindi frá því í dag að Ísland myndi mæta lærisveinum Arons Kristjánssonar í liði Kúveit, 7. og 9. janúar, í Laugardalshöll. Leikirnir eru þeir síðustu áður en Ísland mætir til leiks á HM í Þýskalandi.

Til stóð að Ísland myndi spila heimaleiki við Egyptaland í janúar, eftir að hafa spilað tvo vináttuleiki í Egyptalandi síðastliðið vor, en Egyptar hættu skyndilega við Íslandsförina.

„Við erum mjög ánægð með að hafa náð samkomulagi við Kúveit um þessa leiki. Þetta verður góður prófsteinn fyrir okkur í aðdraganda HM og jafnframt frábært tækifæri fyrir stuðningsfólk íslenska landsliðsins að sjá strákana okkar í Laugardalshöll í síðustu undirbúningsleikjum fyrir mótið,“ segir Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, í tilkynningu.

Kúveit hefur um árabil verið meðal sterkustu landsliða Asíu og vann liðið bronsverðlaun á síðustu Asíuleikum.

Liðið leikur eins og fyrr segir undir stjórn Arons Kristjánssonar sem var einmitt landsliðsþjálfari Íslands á árunum 2012-2016. Stefán Árnason var svo ráðinn aðstoðarþjálfari Kúveit í sumar.

Kúveit er á leiðinni á HM eins og Ísland, í janúar. Íslendingar eru í H-riðli með Barein, Japan og Norður-Makedóníu, og fara svo væntanlega í milliriðil með þremur liðum úr G-riðli en þar spila Danmörk, Slóvenía, Bandaríkin og Angóla.

Kúveit spilar í D-riðli á HM, með Argentínu, Frakklandi og Brasilíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×