Shelton hafði betur gegn Alcaraz í leik sem stóð fram til morguns Andri Broddason skrifar 9. september 2026 08:01 Ben Shelton vann Carlos Alcaraz í fyrsta skiptið á ferlinum. Mike Stobe/Getty Images Ben Shelton vann Carlos Alcaraz í 8-liða úrslitum Opna bandaríska risamótsins í tennis nú í morgun. Leikurinn var gríðarlega langur og stóð til hálf fjögur að morgni til á staðartíma.
Stórleikur var á Opna bandaríska risamótinu í tennis í morgun þar sem heimamaðurinn Ben Shelton mætti Carlos Alcaraz, ríkjandi meistara mótsins. Alcaraz vann fyrsta settið naumlega 7-6 en tapaði svo næstu tveim 6-1. Fjórða settið vann Alcaraz 6-1 og því ljóst að úrslitin myndu ráðast í úrslitasettinu. Mikil spenna var í úrslitasettinu og var staðan orðin 6-6 og virtust hvorugir ætla að gefast upp. Leikmennirnir fóru því í tíu stiga umspil þar sem fyrsti leikmaðurinn til að fá tíu stig myndi vinna leikinn. Þar byrjaði Ben Shelton betur en ljóst var að gríðarlega mikilvægt var að halda uppgjafarréttinum. Báðir leikmenn græddu mikið af stigum út frá uppgjöfum sínum. Alcaraz náði að komast í 5-3 og virtist ætla að sigla sigrinum heim en heimamaðurinn Shelton var langt frá því að gefast upp. Alcaraz var orðinn þreyttur og byrjaði að gera mistök sem Shelton var duglegur að nýta. Staðan var 9-7 fyrir Shelton og átti hann uppgjafarréttinn. Hann skoraði strax úr fyrstu uppgjöfinni og vann þar af leiðandi ótrúlegan sigur á Carlos Alcaraz. Þetta er í fyrsta skipti sem Shelton nær að vinna Alcaraz en þetta var í fjórða skipti sem þeir mætast sem atvinnumenn. Leikurinn stóð í fjóra og hálfan tíma og endaði klukkan hálf fjögur á staðartíma. Leikur á Opna bandaríska risamótinu hefur aldrei klárast eins seint. Ben Shelton mætir landa sínum Frances Tiafoe í undanúrslitum sem vann einnig maraþonleik. Búast má því við gríðarlegri skemmtun þegar Shelton og Tiafo mætast en báðir hafa verið að spila frábærlega á mótinu.
Tennis Opna bandaríska Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira