Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson skrifar 9. september 2026 11:30 PISA-niðurstöðurnar sem birtust í gær kalla á ábyrga umræðu. Árangur íslenskra nemenda í lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum er undir meðaltali OECD og þróunin undanfarin ár er áhyggjuefni. Niðurstöðurnar 2025 staðfesta að sá mikli samdráttur sem varð milli áranna 2018 og 2022 hefur ekki gengið til baka. Það væri hins vegar mikil einföldun að lesa þessar niðurstöður sem einhvers konar dóm yfir íslenskum börnum eða íslenskum grunnskóla. Börn sem við eigum að vera stolt af Á hverjum degi mæti ég börnum sem eru forvitin, skapandi, hlý, skemmtileg, umhyggjusöm og full af hæfileikum. Börnum sem vilja standa sig, vilja tilheyra samfélaginu sínu og vilja láta gott af sér leiða. Ég sé líka starfsfólk skólanna leggja mikið á sig við að skapa þeim öruggt og gott umhverfi til náms og þroska. PISA-niðurstöðurnar segja okkur líka þessa sögu. Um 78% íslenskra nemenda segjast forvitin um margt samanborið við 73% að meðaltali innan OECD. Þá segjast 67% leggja meira á sig þegar verkefni verða erfið en hlutfallið er 60% að meðaltali innan OECD. Frá 2022 hefur hlutfall íslenskra ungmenna aukist sem segjast leggja aukalega á sig þegar á móti blæs. Þarna sjáum við merki um seiglu barna. Við erum með unga kynslóð sem býr yfir forvitni og vilja til að takast á við hlutina. Það er gríðarlegur styrkur sem við eigum að byggja á. Félagslega eru líka margir jákvæðir þættir. Einelti mælist minna á Íslandi en að meðaltali í OECD. Þá segjast 85% íslenskra nemenda leita til kennara þegar þau þurfa hjálp og 83% leita til samnemenda þegar þau skilja ekki verkefni. Einnig er hlutfall þeirra barna sem telur sig geta leitað til foreldra sinna eftir aðstoð hærra hér á landi en í samanburðarlöndum. Barn sem upplifir öryggi, tengsl, traust og að það geti leitað eftir aðstoð hefur mikilvægan grunn til að byggja á. Nám verður ekki til í tómarúmi Ég hef starfað í skólakerfinu í rúm 20 ár og hef sífellt meiri sannfæringu fyrir því að þegar við ræðum stöðu menntunar þurfi samfélagið allt að horfa í eigin barm. Það er auðvelt að segja að skólinn þurfi einfaldlega að gera betur. Kennarar þurfi að kenna betur, skólastjórnendur þurfi að stjórna betur, námskráin þurfi að breytast og stjórnvöld þurfi að bregðast við. Allt þetta kann að eiga við að einhverju leyti en þar með er ekki öll sagan sögð. Börnin okkar koma ekki í skólann á morgnana óháð samfélaginu sem þau lifa í. Foreldrar, skólar, sveitarfélög, stjórnvöld og samfélagið í heild mótum þær væntingar sem gerðar eru til barna. Við mótum hversu mikla ábyrgð þau fá, hvernig talað er um skólann, kennara og menntun. Við mótum hversu mikils við metum lestur, vinnusemi, þrautseigju og einbeitingu. Þess vegna er PISA ekki eingöngu próf á skólakerfið. Það er að einhverju leyti spegill á samfélagið okkar. Höfum við ofverndað börnin? Ég hef velt því mikið fyrir mér undanfarin ár hvort við fullorðna fólkið höfum stundum farið of langt í að ryðja hindrunum úr vegi barna. Við viljum verja þau fyrir vonbrigðum, grípa þau þegar eitthvað verður erfitt, tryggja að þeim líði vel og að þau þurfi ekki að glíma við óþarfa mótlæti. En stundum felst mesti stuðningurinn ekki í því að fjarlægja hindrunina. Stundum felst hann í því að standa við hlið barnsins á meðan það tekst á við hana. Börn þurfa að upplifa að verkefni geti verið erfið. Þau þurfa að gera mistök, fá ranga niðurstöðu, reyna aftur og komast að því að þau geta meira en þau héldu. Þau þurfa að læra að árangur kemur ekki alltaf strax og það er ekki síður mikilvægt fyrir börn að læra að tapa eins og það að læra að sigra. Einföldum námsumhverfið Við í skólasamfélaginu þurfum líka að vera tilbúin að spyrja erfiðra spurninga um okkur sjálf. Höfum við gert skólastarfið of flókið? Eru of flókin hæfniviðmið? Eru of margar áherslur sem allar eiga að vera í forgangi á sama tíma? Er of mikið áreiti og of lítið rými til að dvelja við hlutina, æfa þá og ná góðum tökum á þeim? Ég tel að við þurfum að staldra aðeins við og hægja á. Það má vera meiri einfaldleiki í skólastarfi, meiri ró og skýrari forgangsröðun. Meira rými fyrir grunnfærni eins og lestur, ritun, stærðfræði, samtal, sköpun og einbeitingu. Við þurfum að treysta kennurum fyrir kennslunni og skapa þeim svigrúm til að sinna henni. Það er athyglisvert í PISA 2025 að 83% íslenskra nemenda segja kennara sýna námi hvers nemanda áhuga á móti 69% að meðaltali innan OECD. Þá segja 77% að kennarinn haldi áfram að útskýra þar til nemendur skilja. Þarna er styrkur sem við eigum að nýta. Skjáir, svefn og einbeiting eru líka skólamál Við verðum jafnframt að ræða af hreinskilni þær miklu samfélagsbreytingar sem hafa orðið á lífi barna. Skjánotkun er þar augljóst dæmi. PISA sýnir að íslenskir nemendur segjast nota stafræn tæki að meðaltali 3,2 klukkustundir á dag í skólanum vegna náms samanborið við 1,7 klukkustundir innan OECD. Tæknin hefur fært okkur ótal tækifæri og hún er komin til að vera. En það má samt spyrja hvort við höfum fundið rétta jafnvægið. Sama á við um svefn, lestur, símanotkun, samfélagsmiðla og sífellt áreiti á athygli barna. Einbeiting er eitthvað sem kemur ekki að sjálfu sér. Við þurfum að hjálpa börnunum að rækta hana og það verkefni verður ekki leyst inni í skólastofunni einni saman. Stöndum með grunnskólanum Það er mikilvægt að tryggja að viðbrögðin við PISA verði ekki enn ein umræðan þar sem skólar og kennarar eru settir einir í varnarstöðu. Við þurfum ekki gífuryrði eða sleggjudóma. Við þurfum samstöðu og yfirvegun og samstill átak um að standa vörð um grunnskólann og um leið hafa kjark til að breyta honum þar sem þess er þörf. Styðjum starfsfólkið okkar, tryggjum góð námsgögn, sköpum stöðugleika og gefa kennurum tíma og svigrúm til að sinna því sem þeir kunna best en það er að kenna. En skólinn þarf líka að hafa kjark til að gera kröfur. Kröfur um vinnu, þátttöku, mætingu, framfarir og sýna ábyrgð. Börn finna öryggi í skýrum væntingum. Þau þurfa fullorðið fólk sem hefur trú á því að þau geti tekist á við krefjandi verkefni. Þetta er sameiginlegt verkefni Við eigum að læra af þessu og þora að breyta því sem þarf að breyta. Við eigum að skoða námsefni, kennsluhætti, námskrá, hæfniviðmið, skjánotkun og skipulag skólastarfs af opnum hug. Við erum með sterka íslenska æsku. Forvitin börn sem vilja læra og tilheyra og börn sem búa yfir ótrúlegum hæfileikum og möguleikum. Verkefni okkar fullorðna fólksins er ekki að ryðja öllum hindrunum úr vegi þeirra. Verkefnið er að búa þeim umhverfi þar sem þau fá stuðning til að takast á við þær. Markmiðið þarf að vera að börnum líði vel, þau finni öryggi og tilheyri samfélagi en að til þeirra séu um leið gerðar skýrar væntingar. Að þau fái verkefni sem reyna á þau og fái góða menntun sem undirbýr þau fyrir lífið. Við sem samfélag þurfum að vinna þetta saman. Höfundur er skólastjóri Húsaskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun