Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar 10. september 2026 23:32 Ég er eiginlega orðin orðlaus. Kannski ættu Íslendingar einfaldlega að taka sér vikufrí frá fréttum, Facebook, kommentakerfum og pólitík. Ekki vegna þess að við eigum ekki að fylgjast með því sem gerist í samfélaginu, heldur vegna þess að þjóðfélagið virðist komið á yfirsnúning. Hvert málið rekur annað. Allt verður að átökum. Allt verður að hneyksli. Ein setning verður að fyrirsögn, fyrirsögnin verður að Facebook-færslu og áður en maður veit af eru hundruð manna farin að rífast um fólk sem þau hafa aldrei hitt. Hvað varð um það að vera einfaldlega ósammála? Ég hef sjálf sterkar skoðanir. Ég hef skrifað um Evrópusambandið, krónuna, vexti, ríkisfjármál, bókun 35, þjónustu hins opinbera og pólitík. Ég hef líka komist að því að maður getur haft rangt fyrir sér. Þess vegna hef ég reynt að hafa eina einfalda reglu: Engin fullyrðing án heimilda. Kannski þyrfti sú regla að gilda aðeins víðar. Það er hægt að gagnrýna án þess að hata. Það er hægt að gagnrýna ríkisstjórn án þess að hata ráðherra. Það er hægt að gagnrýna stjórnarandstöðu án þess að gera fólkið þar að óvinum þjóðarinnar. Það er hægt að vera ósammála um Evrópusambandið, skatta, vegaframkvæmdir, ríkisútgjöld eða hvað annað án þess að hinn aðilinn sé heimskur, spilltur eða vondur. Stjórnmálamenn bera ábyrgð. Alþingi á ekki að vera leiksvið þar sem sá vinnur sem nær reiðustu fyrirsögninni í kvöldfréttunum. Hlutverk stjórnarandstöðu er að veita stjórnvöldum aðhald. Hlutverk ríkisstjórnar er að svara gagnrýni og standa fyrir ákvörðunum sínum. En hvorugt hlutverkið felst í því að halda samfélaginu í stöðugu viðbragðsstigi. Fjölmiðlar bera líka ábyrgð. Ég vil ekki fjölmiðla sem hætta að segja okkur hvað gerist á Alþingi. Þvert á móti. Ég vil öfluga fjölmiðla sem fylgjast með valdinu, spyrja erfiðra spurninga og segja okkur þegar stjórnvöld gera mistök. En þarf hvert upphlaup að verða stórfrétt? Þarf hver hvöss setning úr ræðustól Alþingis að verða fyrirsögn? Þarf alltaf að finna sigurvegara og tapara, reiðasta viðmælandann og mest ögrandi setninguna? Því á meðan stjórnmálamenn og fjölmiðlar berjast um athygli situr almenningur eftir með hávaðann. Við erum lítil þjóð. Við vinnum saman, búum saman, erum skyld, tengd eða þekkjum einhvern sem þekkir einhvern. Samt tölum við stundum hvert við annað á samfélagsmiðlum eins og þjóðin skiptist í tvær óvinveittar fylkingar sem geti ekki búið í sama landi. Það getur varla verið heilbrigt samfélag. Við þurfum heldur ekki að vera sammála um allt til að geta búið saman. Það heitir lýðræði. Lýðræði felst einmitt í því að stundum vinnur málstaðurinn sem maður studdi og stundum tapar hann. Stundum kemst flokkurinn sem maður kaus í ríkisstjórn og stundum ekki. Stundum tekur Alþingi ákvörðun sem maður telur góða og stundum langar mann að öskra á sjónvarpið. Þá gagnrýnum við. Spyrjum. Leitum heimilda. Veitum stjórnvöldum aðhald. En við þurfum ekki við hvert ágreiningsefni að krefjast þess að ríkisstjórnin fari frá eða að einhver flokkur hverfi af Alþingi. Þegar kemur að kosningum kjósum við aftur. Þá gerum við upp hug okkar og ákveðum hverjum við treystum til að fara með völdin næst. Þangað til eigum við að geta tekist á um málin, verið ósammála og jafnvel orðið fokreið — án þess að lýðræðið sjálft verði að næsta átakamáli. Það heitir lýðræði. En ef við gerum alla pólitíska andstæðinga að óvinum, alla gagnrýni að árás og hverja ákvörðun að þjóðarkreppu, þá erum við sjálf farin að skemma það samfélag sem við segjumst vera að berjast fyrir. Kannski er kominn tími til að lækka aðeins hitann. Ekki hætta að ræða stjórnmál. Ekki hætta að gagnrýna. Ekki hætta að spyrja erfiðra spurninga. Heldur hætta að hata. Því það má heldur ekki gleyma því að á bak við allan þennan hávaða er venjulegt fólk að reyna að lifa venjulegu lífi. Fólk er að hafa áhyggjur af reikningunum, heilsunni, börnunum sínum, foreldrum sínum og framtíðinni. Sumir eru að annast veika ástvini, aðrir eru sjálfir veikir, einmana eða einfaldlega orðnir þreyttir. Það fólk þarf ekki á því að halda að kveikja á símanum á morgnana og fá strax á tilfinninguna að Ísland sé að farast fyrir hádegi. Við eigum nóg af raunverulegum vandamálum til að leysa: húsnæði, vexti, verðbólgu, heilbrigðiskerfi, þjónustu við aldraða og öryrkja, samgöngur og ríkisfjármál. Þar ætti orkan okkar að fara. Við þurfum ekki að búa til fleiri óvini. Kannski ættu stjórnmálamenn að anda aðeins áður en þeir tala, fjölmiðlar áður en þeir birta og við hin áður en við ýtum á „senda“. Og ef það dugar ekki? Þá legg ég enn til vikufrí frá fréttum. Landspítalinn hefur örugglega nóg að gera fyrir. Höfundur er fyrrverandi trúnaðarmaður Sameykis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun