Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Aron Guðmundsson skrifar 12. september 2026 11:31 Linda Líf Boama í landsleik með Íslandi vísir/Diego Linda Líf Boama, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Charlton á Englandi, verður frá keppni næstu mánuði eftir að hafa meiðst á hné með liði sínu aðeins nokkrum dögum eftir að hún gekk í raðir Charlton.
Linda opnar sig um áfallið í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hún segir stóra ævintýri sitt á Englandi hafa tekið óvænta stefnu. „Ég hef orðið fyrir hnémeiðslum sem halda mér frá vellinum næstu mánuði,“ skrifar Linda í færslunni á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Linda Líf Boama (@lindalifboama) Hún telur sig hins vegar vera mjög heppna. „Þetta hefði geta farið mun verr. Þetta eru meiðsli sem við munum takast á við með þolinmæði og ákveðni. Ég gæti ekki verið í betri höndum.“ Hún þakkar teyminu hjá Charlton fyrir skjót viðbrögð, stuðning og umhyggju. „Það er auðveldara að vera jákvæður og halda áfram að brosa með þessu frábæra fólki, bæði stelpunum og starfsfólkinu. Mamma fær sérstakar þakkir fyrir að fljúga strax út til mín. Ég verð komin aftur áður en þið vitið af.“ Linda Líf gekk í raðir Charlton undir lok síðasta mánaðar frá sænska félaginu Kristianstad. Charlton er nýliði í efstu deild á Englandi. Hún skrifaði undir þriggja ára samning við Charlton. Ljóst er að Linda mun ekki, sökum meiðslanna, vera í landsliðshópi Íslands fyrir afar mikilvægt verkefni liðsins gegn Króatíu í undanúrslitaeinvígi í umspili fyrir HM í fótbolta sem fer fram í Brasilíu á næsta ári. Fyrri leikur liðanna fer fram þann 9. október næstkomandi í Króatíu. Seinni leikurinn hér heima á Laugardalsvelli þann 13. október.
Landslið kvenna í fótbolta Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Býður sig fram á móti Infantino Ibrahimagic framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Sjá meira