Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Aron Guðmundsson skrifar 14. september 2026 11:30 Elín Klara Þorkelsdóttir hefur slegið í gegn með meistaraliði Savehof og tekur brátt skrefið í stærri deild sem henni hefur dreymt um að spila í. Vísir/Sigurjón Elín Klara Þorkelsdóttir, leikstjórnandi íslenska landsliðsins, er á leið til danska stórliðsins Ikast á næsta ári eftir draumkennda byrjun í atvinnumennskunni í Svíþjóð. Hún uppfyllir brátt draum sinn og er hvergi nærri hætt.
Það er ekki annað hægt að segja en að Elín Klara hafi tekið atvinnumennskuna með trompi. Strax á fyrsta tímabili með sænska stórliðinu Savehof skaraði hún fram úr og leiddi sókn liðsins í átt að sænska meistaratitlinum. Sókn sem skilaði titli og nafnbótinni besti leikmaður deildarinnar. Klippa: Elín Klara sló strax í gegn og varð eftirsótt Frammistaðan vakti athygli og nú hefur danska stórliðið Ikast tryggt sér þjónustu Elínar Klöru frá og með næsta tímabili. Skref fram undan í sterkari deild. „Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að spila í dönsku deildinni, enda virkilega sterk deild og svo kemur þetta bara upp með Ikast og hérna, náttúrulega bara ótrúlega stór og flottur klúbbur og einmitt bara, mér leist ótrúlega vel á þetta og hérna, er bara virkilega stolt af þessu.“ Hver er aðdragandinn að þessu? Er langt síðan þú heyrðir af áhuga liðsins? „Já, þetta kom upp á síðasta tímabili eftir áramót. Mig minnir að það hafi verið í febrúar eitthvað svoleiðis þannig að þetta er eiginlega búið að vera í loftinu svolítið lengi, þá kom upp áhuginn. Mér leist ótrúlega vel á þetta um leið og það hefur einmitt líka alltaf verið markmið hjá mér að fara til Danmerkur. Ég hugsa að þetta sé deild sem hentar mér mjög vel, hröð deild. Markmiðið og draumurinn Talandi um Danmörku, er þetta ekki bara klárt skref upp á við þegar maður horfir á styrk deildarinnar og svo liðið sjálft? „Jú, algjörlega. Ég er búin að vera á frábærum stað hérna í Svíþjóð. Svo var þetta svolítið markmiðið hjá mér að taka hérna fyrsta skrefið hingað út til Svíþjóðar og fara síðan til Danmerkur. Ég hugsa að þetta sé mjög gott skref og frábært að vera í framtíðarplönum Ikast.“ Hin 21 árs gamla Elín Klara aðlagaðist atvinnumennskunni fljótt. Kom það þér á óvart hversu vel þú náðir að byrja þennan kafla? „Já, það gerði það alveg. Þetta er náttúrulega bara stórt skref, að flytja að heiman og allt það og búa erlendis. En svo byrjar maður þennan kafla og aðlagast. Þetta er bara handbolti, ég er líka með frábæra liðsfélaga. Það var tekið ótrúlega vel á móti mér. Ég held að það hafi hjálpað. Þetta er gott umhverfi, góður klúbbur, mér líður vel hérna. Ef manni líður vel þá spilar maður vel þannig að ég hugsa að það hafi líka hjálpað ótrúlega mikið. Fann fyrir áhuga Það var ekki bara Ikast sem var á eftir okkar öfluga leikstjórnanda sem er lykilpóstur í íslenska landsliðinu. „Ég get alveg sagt að maður hafi fundið fyrir áhuga. Sérstaklega eftir síðasta tímabil og á meðan á því stóð. Mér fannst þetta einhvern veginn bara ágætt, að koma aftur hingað út og taka eitt tímabil í viðbót. Ég er bara með fulla einbeitingu á því að gera vel á þessu tímabili með Sävehof. Auðvitað væri frábært að taka gullið aftur, sko. Einbeitingin hjá mér er hér. Þessi tíðindi koma snemma á tímabilinu. Það er enn svolítið langt í að ég fari yfir til Ikast, þannig að fókusinn er bara allur hér í Svíþjóð og að gera vel með liðinu mínu.“
Sænski handboltinn Landslið kvenna í handbolta Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira