Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Sunna Sæmundsdóttir skrifar 14. september 2026 15:31 Vilhjálmur Birgisson er formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambands Íslands. Vísir/Arnar Formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýnir harðlega áform atvinnuvegaráðherra um að banna hvalvalveiðar. Hann segir grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein sem hafi skapað bæði störf og útflutningstekjur.
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, hyggst í febrúar leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um hvalveiðar og í samtali við fréttastofu staðfesti hún að þar yrði að finna ákvæði um bann við veiðunum. Hún sagði bæði viðskiptahagsmuni þjóðarinnar og dýravelferð undir í málinu. Fjölmörg erlend ríki hafa gagnrýnt hvalveiðar Íslendinga og samkvæmt heimildum fréttastofu hafa stjórnvöld vestanhafs hótað því að leggja tolla á íslenskan innflutning vegna þeirra. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að á annað hundrað manns séu með atvinnu í tengslum við hvalvertíðina sem nú stendur yfir. Meðallaun þeirra séu um 2,4 milljónir króna á mánuði. „Þetta snýst um atvinnufrelsi, atvinnuöryggi, verðmætasköpun og lífsafkomu fólks og fjölskyldna á Vesturlandi,“ skrifar Viljálmur á Facebook og gagnrýnir áform ráðherra. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., í vinnslustöð félagsins í Hvalfirði.vísir/Vilhelm Hann telur rök fyrir banni ekki standast skoðun og segir að um hræðsluáróður sé að ræða. „Málið er enn alvarlegra vegna þess að hér eru stjórnarskrárvarin atvinnu- og eignarréttindi undir, eins og sérfræðingar stjórnvalda sjálfra hafa bent á. Samt ætlar Viðreisn að halda áfram og banna heila atvinnugrein með lagasetningu,“ segir Vilhjálmur. „Það er grafalvarlegt þegar stjórnmálamenn telja sig geta bannað heila atvinnugrein, fórnað verðmætasköpun og tekið atvinnu og lífsafkomu af fólki á grundvelli pólitískrar hugmyndafræði og hræðsluáróðurs sem stenst ekki skoðun. Ef vísindin segja að nýtingin sé sjálfbær eigum við Íslendingar að ráða nýtingu okkar eigin sjávarauðlinda.“ Í byrjun mánaðar hafði Hvalur hf. samtals veitt 72 langreyðar af 116 dýra útgefnum kvóta.
Hvalveiðar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira