Viðskipti innlent

Enn hnútur hjá flug­mönnum Icelandair

Bjarki Sigurðsson skrifar
Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA segir lítið að frétta af kjaradeilu félagsins við Icelandair.
Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA segir lítið að frétta af kjaradeilu félagsins við Icelandair. Vísir/Vilhelm

Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) munu ekki skrifa undir samninga í dag líkt og stefnt var á með verkstýrðri verkáætlun ríkissáttasemjara. Nefndirnar eru þó enn í virku samtali. 

„Það er ekkert að frétta,“ segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, í samtali við fréttastofu. 

Í júní var tilkynnt að deiluaðilar hefðu samþykkt að vinna eftir verkstýrðri verkáætlun ríkissáttasemjara sem hafði það að meginmarkmiði að ljúka viðræðum um endurnýjun samninga fyrir 15. september, sem er á morgun. 

Funda aftur á morgun

„Við höldum áfram, þetta mjakast áfram. Við höldum bara áfram á meðan fólk er tilbúið að halda áfram,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við fréttastofu. 

Ástráður Haraldsson er ríkissáttasemjari.vísir/vilhelm

Nefndirnar funduðu síðast í dag og búið er að boða til nýs fundar á morgun. Þó svo að markmiðinu um að ljúka viðræðum fyrir morgundaginn hafi ekki verið náð er enn unnið eftir verkstýrðu verkáætluninni. 

Aðspurður um stöðu viðræðna Icelandair og flugvirkja, sem tilkynntu í dag að þeir myndu hefja verkfallsaðgerðir eftir níu daga, segir Ástráður að hann hafi lítið um málið að segja. Staðan sé þó erfið og búin að vera það lengi. Jón Þór segir aðgerðir flugvirkjanna ekki hafa áhrif á deilu flugmannanna. 


Tengdar fréttir

Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar

Ágætis gangur er í kjaraviðræðum flugmanna og Icelandair, að sögn formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Fundað var í húsakynnum ríkissáttasemjara frá mánudegi til fimmtudags.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×