Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. september 2026 21:39 „Hún hafði alveg einstakan kraft í þessu öllu saman,“ segir eigandi hryssunnar Vordísar sem fannst á lífi eftir að hafa verið týnd í rúma tvo sólarhringa. Hryssan Vordís frá Sturlureykjum hafði verið týnd í fimmtíu klukkustundir þegar hún fannst í sjálfheldu í mýrarlæk. Eigandi hennar segir hana nú vera komna yfir erfiðasta hjallann en langt endurhæfingarferli sé í vændum.
Leit að hinni fjögurra vetra gömlu hryssu Vordísi frá Sturlureykjum, við bæinn Árbakka í Rangárþingi ytra, hafði staðið yfir í rúma tvo sólarhringa eftir að hún fór úr hólfi sínu í gegnum girðingu. Hún fannst að lokum í holu sem hún hafði að öllum líkindum fallið ofan í í myrkri. Mikill gróður og mýrlendi umkringir svæðið sem um ræðir og því er engin leið að sjá holuna nema í mikilli nálægð. Að auki gefi hross frá sér lítil sem engin hljóð og því hafi leitin reynst erfið. Höfðu að öllum líkindum gengið fram hjá nokkrum sinnum „Við löbbuðum örugglega bæði daginn áður en hún fannst og daginn fyrir það bara rétt fram hjá henni án þess að vita. Við vorum búin að leita út um allt og hafa samband við fólk í sveitinni. Við settum allt í það að finna hana,“ segir Jóhanna Margrét Snorradóttir, önnur eiganda Vordísar. Tengdaforeldrar Jóhönnu reka hestabúgarð á Árbakka en þar eru þau með á annað hundrað hross og tamninga- og þjálfunarmiðstöð. Jóhanna og maður hennar hafa verið að vinna á bænum síðan árið 2018 og keyptu Vordísi í vetur. „Okkur langaði að bæta í ræktunarhryssuhópinn okkar. Það var planið með hana og vonandi er enn ef allt gengur vel,“ segir Jóhanna. Gekk á hljóðið og fann Vordísi Sæmundur Þorbjörn, starfsmaður sem hjálpar oft til á svæðinu með ýmis verkefni varðandi girðingar og annað, fann hryssuna að lokum eftir langa leit fjölskyldunnar og nágranna. „Við vorum náttúrulega búin að segja honum frá þessari hryssu sem var týnd. Þannig að hann var með eyru og augu opin þegar hann var niður frá. Svo heyrir hann eitthvað hljóð, gengur á það og finnur hana. Þá hefur hún eitthvað verið að hreyfa sig.“ Þá hafi heljarinnar björgunaraðgerð hafist enda séu hross um 350 kíló. Dráttarvél hafi verið fengin til þess að hífa Vordísi upp úr. „Það var rosalega gott að finna hana og á lífi. Við vorum farin að hafa miklar áhyggjur af því að hún væri í vandræðum.“ Hafi sýnt einstakan viljastyrk Það sem hafi þó verið merkilegast af öllu að sögn Jóhönnu var að um leið og Vordís hafi verið komin upp úr holunni hafi hún byrjað að éta gras. „Hún byrjaði strax að sýna að það væri vilji í henni til þess að bjarga sér. Þetta eru hræðilegar aðstæður fyrir hross að vera í svona margar klukkustundir. Það eru mörg hross, held ég, sem hefðu verið búin að gefast upp á að berjast fyrir lífi sínu. Hún hafði alveg einstakan kraft í þessu öllu saman. Hún er eitthvað óvenjuleg, þessi hryssa. Ég held að það séu ekkert öll hross sem hefðu gert þetta sem hún gerði.“ Vordís sé öll að koma til en enn sé langt og strangt bataferli framundan. „Bataferlið á eftir að taka mikinn tíma. Við erum ekki að sjá fram á að fara að þjálfa hana fyrr en bara kannski einhvern tímann eftir áramót. Hún þarf langan tíma til þess að jafna sig á þessu.“
Hestar Dýr Rangárþing ytra Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira