Réðst á ökumann með slökkvitæki Smári Jökull Jónsson skrifar 16. september 2026 06:25 Ráðist var að ökumanni bifreiðar með slökkvitæki. Vísir/Viktor Freyr Einn var handtekinn af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eftir að hafa brotið rúður í bifreið með slökkvitæki og síðan kastað tækinu í ökumann. Þá þurfti lögregla einnig að hafa afskipti af aðila sem neitaði að yfirgefa íbúð sem hann hafði verið með á leigu.
Alls voru fimmtíu og fjögur mál skráð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17:00 í gærdag og þar til klukkan 05:00 í nótt. Á svæði lögreglustöðvar fjögur, sem sinnir verkefnum í austurbæ borgarinnar, var lögregla kölluð til vegna aðila sem ráðist hafði að öðrum í bifreið með slökkvitæki. Braut hann rúður í bifreiðinni með tækinu og kastaði því síðan í ökumanninn. Í dagbók lögreglunnar segir að einstaklingurinn hafi verið handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna leigutaka sem neitaði að yfirgefa íbúðina sem hann hafði verið með á leigu. Stóð hann í hótunum við leigusala sem hafði samband við lögreglu og óskaði eftir aðstoð við að koma leigjandanum út. Önnur minniháttar mál komu einnig til kasta lögreglunnar. Óskað var eftir aðstoð eftir að einstaklingurinn pantaði mat og drykk á veitingastað en gat síðan ekki greitt fyrir og þá var tilkynnt um innbrot á kaffihúsi en innbrotsþjófurinn var farinn af vettvangi þegar lögregla kom á staðinn. Er málið til rannsóknar. Þá var lögregla kölluð til vegna þjófnaðar í fataverslun og til að biðja húsráðanda um að lækka í tónlist eftir að kvartanir höfðu borist.
Lögreglumál Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Erlent Fleiri fréttir Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Sjá meira